Febrúar-marsmyndir!
![]()
Heldur langt síðan hefur verið uppfært. Frá því síðast er Ástþór Örn orðinn sjö ára og Arnaldur Kári alveg hættur með bleiju.
Allt gengur vel í skólanum og leikskólanum, nóg að gera þar. Ég fór svo til Oslóar vegna verkefnisins míns og til Guðrúnar Láru og
fjölskyldu þar sem dekrað var við mig út í eitt. Á meðan gekk allt sinn vana góða gang hjá þeim feðgum sem voru nú líka heilmikið hjá
ömmu og afa þessa daga :o)

Arnaldur Kári að gefa fuglunum brauð


Ótrúlega gaman að kubba!

Arnaldur Kári að lesa eina af uppáhaldsbókunum sínum, Finnur finnur Rúsínu.

Arnaldur Kári í aðalhlutverki á þessum fyrstu myndum, þar sem stóri bróðir
hafði skellt sér í sveitina með ömmu og afa. Þar skemmti hann sér konunglega
og sá meðal annars þegar kindurnar voru sónarskoðaðar og hann fékk að
vita að hún Fíóna hans ætti von á tveimur lömbum með vorinu!


Bolludagur tekinn með trompi :o)

Mættur í Húsdýragarðinn...við hljótum nú að vera orðnir einir af fastagestunum þar!!!!




Arnaldur Kári var ekkert á því að leyfa öðrum að setjast í bílstjórasætið

Á meðan ég var í kafsnjó í Noregi og Svíþjóð fór allt á kaf hérna líka og Ástþór Örn og afi Ástþór bjuggu til
þennan flotta snjókarl sem var nefndur Jakob!


Og þessi dúlli var í fríi á leikskólanum einn dag á meðan ég var í burtu og fékk að gista hjá ömmu og afa í Langa
í fyrsta skiptið! Þótti það mjög spennandi og skemmti sér vel.

Og hér er ein alveg ný af þessum sætu strákum að leika í Playmo.
![]()