Ástþór Örn 7 ára!
19. febrúar varð Ástþór Örn sjö ára og var bekknum hans boðið í afmælisveislu sem heppnaðist vel. Allir skemmtu sér vel og Ástþór Örn farinn að huga að fleiri bekkjapartýum í náinni framtíð! Myndirnar koma svolítið seint, en "vefstjórinn" tók upp á því að fara til útlanda og því verðið þið að fyrirgefa það að lítið hefur verið uppfært!!

Afmæli undirbúið!

Að morgni 19. febrúar biðu pakkar og notalegt morgunkaffi eftir þessum sjö ára yndislega strák!

Upp úr pakkanum frá afa og ömmu í Langagerði kom þetta voða fína úr

Ég myndi vilja eiga voðalega stóra fjölskyldu af mörgum ástæðum...ein af þeim er að þá væru notalegar
morgunafmælisstundir fleiri á hverju ári!!!!!

Voðalega finnst mér stutt síðan þessi gullmoli kom í heiminn á Hilleröd sygehus fyrir sjö árum

Mamma og litli bróðir fagna með aðalkarlinum okkar

Múmínpabbi vissi ekkert hvað hann átti í vændum og beið hálf feiminn í eldhúsinu :o)

Afmælissöngurinn sunginn og búið að kveikja á kertum á kökunni.

Ástþór Örn var svo snaggaralegur að það var bara búið að blása áður en ég gat tekið mynd!!!!



