Lok janúar og byrjun febrúar

 

 

 

Janúar búinn og afmælismánuðurinn hans Ástþórs Arnar genginn í garð, en verðandi sjö ára strákurinn er farinn að telja niður fyrir þó nokkuð löngu.

Hér eru nokkrar myndir, sumar fljóta hér með í febrúaralbúmi þó að þær séu nú frá lokum janúar en aðrar teknar í gær og í dag!

 

   

 

Stórhættulegur myndasmiður uppi á stól!

 

 

 

Litli bróðir fær að leika í Bionicle stóra bróður og leiðist það ekki :o)

 

 

 

Afi Ástþór í kaffi hjá okkur um daginn

 

 

 

Um daginn fengum við líka aðra góða gesti, þegar Guðrún Lára, Einar,

María, Hugi og Baldur Tumi kíktu til okkar

 

 

Hugi og Arnaldur Kári ansi fínir saman, við værum sko til í að geta

fengið þau til okkar svolítið oftar!

 

 

 

Það var erfitt að ná öllum börnum saman á mynd þetta kvöld, þar sem þau þrjú stærri voru dugleg að spila og leika.

Það var því bara að smella af einni á meðan væri verið að spila...þó mér sýnist Ástþór Örn ekki hafa treyst

sér til að hvíla veiðistöngina augnablik!!

 

 

Arnaldur Kári sæti snúður í Múmínnáttfötum sem hún amma Kata færði

honum frá Svíþjóð um daginn. Okkur hin dreymir eiginlega öll um svona

í stærri stærðum...ja eða alla vega mig og Ástþór Örn :o)

 

 

 

Stór sæti snúður spenntur yfir sjónvarpinu.

 

 

 

Og á leið í afmæli til Pedro bekkjarbróður hans síðasta sunnudag!

 

 

 

Í dag drifum við okkur út eftir skóla og leikskóla. Byrjuðum á að skreppa

á "gubburóló" og fórum svo í langan göngutúr.  Það fór ansi spenntur strákur í

skólann í morgun, því í dag héldu fyrstu bekkingar svo kallaða Hundraðdagahátíð

til að fagna fyrstu hundrað dögunum sem þau hafa verið í skólanum!

 

 

 

Og hér er rólan sem olli viðurnefninu gubburóló!

 

 

 

 

 

Arnaldur Kári ákvað að gefa stóru rólunni frí í þetta skiptið en var

duglegur að róla í þessum "venjulegu" í staðinn

 

 

 

Horft með aðdáun en smá skelfingu líka á stóra bróður æpa af gleði

í gubburólunni!!

 

 

 

 

Kíkt ofan í lækinn á leiðinni heim

 

 

 

Og komið við í leyniskóginum sem Ástþór Örn heimsótti svo oft þegar

hann var á Álfaheiði

 

 

 

Ástþór Örn að bauka eitthvað

 

 

 

Við sendum ykkur öllum góðar kveðjur og vonum að þið hafið það sem best!