![]()
![]()
![]()
Þrettándinn hér og þar!
Þeir bræður voru fljótir að koma sér á ról eftir jólafrí...það getum við foreldrarnir ekki alveg sagt um okkur aftur á móti! Þeir fengu einn aukafrídag 4. janúar þegar var starfsdagur en svo byrjaði ballið! Við kvöddum hér jólin í rólegheitum en drifum okkur svo á Þrettándagleðina í Vestmannaeyjum sem var haldin helgina 8. - 10. janúar. Ég hafði ekki verið á þrettándanum í Eyjum síðan ég var stelpa og orðið löngu tímabært að skreppa, ekki síst þar sem Ástþór Örn var eiginlega farinn að huga að því hvernig hann kæmist sjálfur til Eyja!
Áttum þar frábæra daga og þökkum öllum góðar samverustundir.

Heimalesturinn kominn í gang eftir jólafrí. Ástþór Örn dró nú reyndar lestrarbækurnar fram í jólafríinu til að halda
sér við! Arnaldur Kári er mjög spenntur fyrir lestrarstundunum og vill oftar en ekki taka virkan þátt.

Ástþór Örn vill meina að hann verði bara orðinn læs fljótlega...en ætli það séu ekki nokkur ár í það reyndar!!

Ástþór Örn við fallega jólahúsið okkar sem afi Örn smíðaði fyrir nokkrum árum. Ástþór Örn föndraði svo tré
fyrir nokkrum árum sem passar bara nokkuð vel við húsið. Fyrir jólin fundum við nokkur dýr úr safni Ástþórs sem
passaði að setja í og við jólahúsið. Stuttu eftir að við höfðum komið öllum fyrir varð mér litið á húsið og sá þá að
Jósep og María voru komin með kengúru sér við hlið, ljón hafði laumað sér inn í hóp húsdýra og mörgæs orðinn
fjórði lærisveinninn! Arnaldur Kári hafði séð ástæði til að lífga svolítið upp á þetta allt saman. Ljónið og kengúran
fóru nú aftur heim í dótakassann en mörgæsin fékk að standa þarna fyrir utan!

Síðasta tækifærið til að fá myndir af sér við jólatréð

Ég stakk upp á því á Þrettándanum hvort að við ættum ekki að drífa
í að taka jólakortamynd!!! Það komst aldrei í verk hér fyrir jól því miður.

Ástþór Örn bauð upp á smá súkkulaði í eftirrétt á Þrettándanum og er hér að búa til seðil með upplýsingum um
hvern mola...svo að allt væri nú að hreinu. Alveg niðursokkinn í verkefnið og lætur fíflagang í pabba og
litla bróður ekki trufla sig.

Ég veit að myndin er svolítið óskýr en nauðsynleg upp á stemmningu! Nafnar á rölti niður Illugagötuna í
Vestmannaeyjum á leið á fund við jólasveina, tröll, Leppalúða og sjálfa Grýlu.

Beðið eftir komu jólasveinanna

Svo var hitað upp með flugeldasýningu af stærra taginu...við sem erum vön að vera í sveitinni á gamlárskvöld
áttum bara ekki orð yfir þessu öllu saman!

Og þarna komu þeir niður af Hánni jólasveinarnir og stuttu seinna birtust Grýla og Leppalúði í helli í fjallinu

Svo var gengið fylktu liði niður á stóra malarvöllinn þar sem er dansað í kringum brennu með álfum, púkum
og allskyns kynjaverum. Afi Ástþór fór niður eftir með Ástþóri og Ólíver frænda,
sem leist þó ekkert á blikuna þegar leikur stóð sem hæst og vildu bara komast á Hólinn!!

Ég algjör snillingur, eða þannig því ég var með nánast batteríslausa myndavél og náði því ekki að taka mikið
af myndum, til dæmis af nýrri frænku og þeim eldri sem eru líka alltaf jafn sætar!
En Kristín frænka sem býr á Hólnum hefur haldið þeim siði sem afi hélt alla tíð að halda Þrettándaboð.
Náði þó einni mynd af afa Ástþóri með systkinum sínum, Davíð, Kristínu, Vigdísi og Jóhanni.
Þetta var í fyrsta skiptið í yfir 35 ár voru þessi systkini öll saman komin á Hólnum á Þrettándanum, gaman að því!

Þessi tvö náði vel saman, Arnaldur Kári og Klara frænka okkar sem verður tveggja ára í mars.

Æ, svo miklar dúllur!

Á laugardaginn var heilmikið um að vera í bænum. Við fórum heilmikinn rúnt með Ásu og stelpunum hennar,
þeim Kristínu Rós og Sigurlaugu. Hér eru Ástþór Örn og Sigurlaug að heilsa upp á skjaldbökur á
Náttúrugripasafninu

Heilsað upp á steinbíta

Sæfíflar, það næsta sem maður kemst blómum á fiskasafni!!

Það var svo opið hús á slökkvistöðinni og leiddist krökkunum ekki
að fá að máta bílana

Kristín Rós tók sig vel út við stýrið á slökkvibíl

Ástþór Örn loksins kominn í heimsókn til Kristínar Rósar og Sigurlaugar og hefði helst viljað vera alla vega viku
að eigin sögn! Fékk að gista hjá frænkum sínum og skemmti sér konunglega alla helgina í Eyjum.


Á laugardagskvöldið fórum við í matarboð á Höfðaveginn til Kristínar frænku og fjölskyldu.
Þar var Klara líka, Arnaldi Kára til mikillar gleði. Klara er Káradóttir og fannst því hljóta að vera
að það mætti kalla þennan frænda pabba líka!!

Á sunnudaginn litum við svo í heimsókn til Ástu frænku í nýja húsið hennar. Þar fer vel um hana og útsýnið
af veröndinni aldeilis ekki ónýtt.

Þeir feðgar heimsóttu endur og gæsir sem eiga heima rétt hjá Ástu frænku

Og áður en við kvöddum var stoppað aðeins við Brimurðina, þar sem ég fór í skrilljón fjöruferðir hér í "den".

Fórum líka í kirkjugarðinn og smá bæjarrúnt áður en farið var í Herjólf
á leið heim.
![]()
![]()
![]()