Áramót í sveitinni

 

 

Gleðilegt ár! Vonum að nýja árið fari vel af stað og eigi eftir að færa ykkur fullt af gleðistundum og hamingju.

Við vorum í Dal yfir áramótin og höfðum það gott. Veðrið var yndislegt, það besta í 10 ár vorum við sammála um! Nýárstunglið lísti upp kvöldin og sólin sannfærði okkur um að daginn væri tekið að lengja. Það var því hægt að kveikja á nokkrum stjörnuljósum og vera heilmikið úti.

 

 

 

Fallegur morgun á síðasta degi ársins 2009

 

 

Dagurinn byrjaði á ferð í fjárhúsið

 

 

 

Blíðfinnur alltaf til í að setja upp myndasvipinn!

 

 

 

Það var vel hægt að klæða af sér allar mínusgráðurnar og við drifum okkur því í göngutúr niður að á

 

 

 

 

Falleg klakabönd og "frostkrullerí"

 

 

 

 

Trýna og Ástþór Örn bæði með hugann við annað en myndatöku

 

 

 

Við mæðgin reynum aftur á móti okkar besta í uppstillingunni!

 

 

 

Þessi strákur er nú yfirleitt líka með hugann með myndavélina ef hún er nálæg á annað borð ;o)

 

 

 

Heimsóttum svo klárana okkur og færðum þeim svolítið brauð og svo fengu þeir margir líka knús!

 

 

 

Léttir heilsaði aðeins upp á okkur

 

 

 

Ástþór Örn kominn í gírinn

 

 

 

Þarna í myrkrinu má sjá Arnald Kára og Sigurð Ágúst

 

 

 

 

Við erum nú ekki með margar stórar bombur í sveitinni,

enda í nábýli við kindur og hesta. Hér náði ég samt mynd af

áramótarakettunni okkar...sem hvarf náttúrlega heldur ekki í

neitt sprengjuhaf!!

 

 

 

Mér þykja nú stjörnuljósin alltaf best

 

 

 

Á nýársdag var ævintýralega fallegt veðurn og nýttum við okkur það að sjálfsögðu

 

 

 

Ástþór Örn dreif sig meðal annars á snjóþotu

 

 

 

Og auðvitað var líka litið í fjárhúsin

 

 

 

Blíðfinnur þáði brauð

 

 

 

 

 

 

Á meðan Ástþór Örn fór inn og las Oliver með afa Ástþóri settumst við mæðgin aðeins í sandkassann

 

 

 

Marteinn og Gauti frændur okkar komu í sveitina á nýársdag og voru drifnir í fjárhúsin um leið

 

 

 

Hangikjötsveisla á nýárskvöldi

 

 

Arnaldur Kári var voðalega glaður að fá nýtt fólk til að klifra svolítið á og voru Hjalli frændi og Gauti sérlega

móttækilegir fyrir svolitlum fíflagangi!!!

 

 

Nokkur blys tendruð