Jólabakstur, heimsókn í Húsdýragarðinn og tveggja ára afmæli
![]()
Eitthvað verið hljótt á síðunni okkar undan farið, reynum að bæta hér úr með vænum myndaskammti. Desember leið nú svo hratt og allt í einu voru bara komin jól.
Það var margt sem komst í verk en annað ekki, eins og vill vera...jólin komu nú samt! Hér má sjá brot af jólabakstri, jólaheimsókn í Húsdýragarðinn og svo myndir af
tveggja ára Arnaldi Kára :o)

Við tókum okkur til og bökuðum piparkökur og komum okkur í svolítið jólaskap í leiðinni


Og svo var skreytt

Þessi stúfur var fljótur að komast í jólaskap, komst fljótt upp á lag með að fá
eitthvað í skóinn og syngja jólalög...já og svo var "Manstu það.." með Hjálmum eitt af lögunum í syrpunni líka!
Hann er eins og lítið upptökutæki þessi strákur og endurtekur gersamlega allt. Til að mynda stekkur hann að
sjónvarpinu þegar hann sér veðurfréttirnar byrja og segir virðulega "komið þið sæl" líkt og þau sem lesa veðurfréttirnar.
Og við heimilisfólkið fáum ekki leið á því að láta hann segja okkur hitt og þetta sem okkur finnst svo óendanlega
dúllulegt að heyra hann segja.

Í desember skárum við líka út laufabrauð, drukkum kakó og borðuðum smákökur. Ástþór Örn skar nú út
með okkur í fyrsta skiptið og fannst voða gaman...og svolítið erfitt líka reyndar!
Margar kökur mjög fallegar




Við mæðgin bökuðum piparköku-biscotti sem brögðuðust voðalega vel og
enn er eitthvað til ef ykkur langar í smakk með kaffi!


Nauðsynlegur þáttur í jólaundirbúningi er að hafa blómstrandi amaryllis fyrir augunum!

Undanfarin ár höfum við heimsótt Húsdýragarðinn fyrir jólin og í ár kom amma Kata með okkur

Ástþór Örn heilsar upp á Blakk, sem tekur alltaf vel á móti okkur í fjósinu!

Vísindatjaldið alltaf vinsælt og sérstaklega gaman ef það er hægt að
dvelja svolítið lengi við í sápukúlugerðinni!

Búið að heilsa upp á hreindýrin

Þessi tignarlegi örn er í endurhæfingu í garðinum, vonum að hann braggist fljótt

Ástþór Örn á leið á litlu jólin í skólanum

18. desember var haldið upp á afmæli Arnaldar Kára á leikskólanum og voru þær Sunnukonur svo góðar að senda
okkur nokkrar myndir


Við fengum Valgeir Stein í heimsókn í upphafi jólafrísins. Eftir að hafa leikið sér var kominn tími á jólaöl
og smákökusmakk!

Afmælisstrákur að morgni 19. desember

Hann hafði voða gaman að þessu öllu saman, en aðallega var honum umhugað um að það væri alltaf kakó í glasinu hans!

afmælispabbinn

Arnaldur Kári fékk margar fínar gjafir, Ástþór Örn valdi handa honum kanínubangsa og myndavél við hæfi tveggja ára.
Frá okkur foreldrunum fékk hann lego brunabíl, sem hefur verið á ferðinni ansi mikið síðan!

Og dýraáhugamaðurinn var líka mjög ánægður með þetta fína dýrapúsl frá Maríu, Huga og Baldri Tuma vinum sínum
í Svíþjóð.

Og enn streymdu pakkar til þessa afmælisstráks, sem fékk bók og
gauksklukku frá ömmu Hillu og afa Gú gú (sem er einmitt kenndur við
fínu gauksklukkuna þeirra á Akureyri!)

Afi Ástþór og amma Kata höfðu frétt að Arnaldur Kári hefði misst sig
yfir sílafóni í verslun nokkrum dögum áður og afmælisbarnið var alsælt
yfir því að mega spila á sinn eigin að vild! Davíð frændi okkar var á landinu og leit við sem
og Hrabba og Valli. Við höfðum nú stefnt að því að halda afmælið með svolítið formlegri hætti
svolítið fyrr í desember en því miður varð ekki af því, vonandi næst.

Stóra bróður var nú um tíma alveg nóg um alla athyglina sem sá stutti fékk, en svo áttaði hann sig nú á því að það
væri bara alls ekki svo langt í hans eigin afmælisdag!

Sunginn afmælissöngurinn

og afmælisbarninu fagnað!

Kátur með þetta allt saman en ekki alveg á því að afmælislestin fengi ekki að vera áfram!

Ástþór Örn búinn að kveikja á öllum aðventukertunum og ekki svo langt í jólin
![]()