Nóvemberdagar
![]()
Hér eru nokkrar nóvembermyndir teknar síðustu daga. Allt gott að frétta af okkur og bara rólegt nema kannski hjá Ástþóri Erni sem hefur haft nóg að gera! Síðasta fimmtudag bauð hann okkur á myndlistarsýningu sem haldin er í Kúlinni (Litla sviði Þjóðleikhússins) í tengslum við uppsetningu Þjóðleikhússins á Völuspá. Þar átti okkar maður og annað upprennandi listafólk hrafna sem flugu um loftin. Á þriðjudagskvöldið var hann svo ásamt skólafélögum í fyrstu þremur árgöngunum að syngja í Perlunni fyrir norræna ráðstefnugesti. Allt mjög vel heppnað og skemmtilegt. Arnaldur Kári er svo hinn hressasti líka og bauð okkur í morgunkaffi á leikskólann í gærmorgun í tilefni afmælis Lucasar vinar þeirra í Argentínu. Mjög notalegt alltaf að líta á leikskólann þá, fá kaffi, smákökur og skoða hverju er verið að vinna að. En hér koma myndirnar!

Hrafnarnir í Kúlunni


Eins og á öllum alvöru opnunum voru veitingar í boði og Ástþór Örn var alsæll með Fanta og snakk á meðan
hann skoðaði verkin á sýningunni!!
Um helgina drifum við okkur út að labba í góða veðrinu





Svooo gaman að "lóla" eins og Arnaldur Kári segir!


Á sunnudaginn fengum við góða gesti til okkar, Tinnu, Örn og hana Amelíu. Hún er er rétt tæplega eins og hálfs
árs og því ekki svo langt á milli þeirra frændsystkina sem sjást hér leika!

Svo var spjallað svo mikið og leikið að ég gleymdi alveg að stilla þeim öllum upp og taka mynd en við
náðum hér einni þegar Amelía var að gera sig klára til heimferðar!

Á mánudaginn var starfsdagur og því frí hjá þeim bræðrum. Það var spilað, lesið og alls konar þar til við skutluðum
stóra bróðurnum í myndlist. Arnaldur Kári uppgötvaði mikla veiðidellu og sat við með veiðistöngina og reyndi að veiða
"lask" (lax) í góða stund!


Og hér ein af Ástþóri Erni á leið í Perluna á þriðjudagskvöldið!