Haustfrí og hrekkjavaka í sveitinni 

 

 

 

Það er aldeilis að tíminn líður! Kominn nóvember og rétt einn og hálfur mánuður í að Arnaldur Kári verði tveggja ára og bara örlítið lengra til jóla.

Af okkur er allt gott að frétta. Það var haustfrí í skólanum hjá Ástþóri Erni á fimmtudag og föstudag og við drifum okkur í sveitina. Hér er vænn skammtur af myndum, njótið vel!

 

 

 

Það var svolítið vindasamt í sveitinni þegar við komum en fallegasta veður og morgunsólin alltaf yndisleg!

 

 

 

Við vorum dugleg að fara út að labba, enda ágætt að þreyta bæði hunda og börn

 

 

 

 

Arnaldur Kári réði sér vart fyrir fögnuði þegar hrossin voru heimsótt. Hér er heilsað upp á Dufgus

 

 

 

"sita...sita" æpti Arnaldur Kári og fékk því að máta Frakk

 

 

 

Og Ástþór Örn fékk að sjálfsögðu að setjast á bak honum Frakk sínum líka

 

 

 

Þessir tveir voða glaðir að hittast

 

 

 

Við kíktum líka niður að á þar sem ég náði þessari fínu mynd af þeim feðgum

 

 

 

Og þar var þessi ansi væmna mynd af okkur mæðginum líka tekin!!

 

 

 

Rákumst á þennan hellastrák!

 

 

 

Ein í safnið af Ástþóri Erni með Seljafellið í bakgrunni

 

 

      

 

 

 

Ástþór Örn var búinn að hlakka mikið til að halda Hrekkjavöku í sveitinni.

Hér er hann að hefjast handa við graskersútskurðinn

 

 

En fyrst voru venju samkvæmt teiknaðar nokkrar tillögur af andlitum sem svo var valið á milli!

 

 

 

 

 

 

Voila!

 

 

 

Svolítið meira grín að hætti Ástþórs Arnar!!

 

 

 

Komið ljós í kerið og andar mega fara að vara sig!

 

 

 

Það var heilmikið lagt upp úr veitingum í boðinu okkar. Kóngulær, vampírur, furðuverur og svo hinn fasti gestur;

Skeggjaða konan!

 

 

 

Svo voru þessi ofursætu draugar á ferðinni líka

 

 

 

Hrekkjavakan gengið í garð

 

 

 

 

Þessi gaukur var ekkert á því að fara í búning, en Ástþór Örn hafði tekið með gamlan bangsabúning frá því hann var sjálfur lítill.

Arnaldur Kári var þeim mun spenntari fyrir graskerinu, búningum og grímum annarra já og veitingunum!! Og ekki minni athygli

fengu litlar plastflugur, kóngulær og maurar sem Ástþór Örn var búinn að skreyta með hátt og lágt.

 

 

 

 

 

      

 

 

Veðurguðirnar að reyna að gera upp við sig hvað eigi að verða...rigning, þoka, rok...skellum alla vega einum

regnboga í gang!!

 

   

 

Það voru teknar nokkrar skákir í sveitinni

 

 

 

Í boltaleik

 

 

 

Voða spenntir áhorfendur

 

 

Píla skarst í leikinn um tíma

 

 

Arnaldur Kári nennti nú ekki að eltast við boltann lengi, enda náði Ástþór Örn honum alltaf! Hann dreif því

vinkonur sínar tvær með sér á vit annarra ævintýra

 

 

 

 

Alltaf gaman að setjast í sandkassann og moka svolítið. Arnaldur Kári hefði getað sofið þarna með skófluna og bíl

 

 

 

Komnir inn í hlýjuna í kakó og brauð með osti

 

 

 

Ástþór Örn að lesa Syrpu. Hann er duglegur að æfa lesturinn og finnur

nú sjálfur hvað honum hefur farið fram og er því farinn að reyna sig

við hitt og þetta sjálfur þó að Syrpurnar séu einna mest lesnar!

 

 

 

Hinir ógurlega sætu bræður stilla sér upp!

 

 

 

Eyðimerkurspilið Tarqui er sívinsælt, keypt fyrir jólin 1987 myndi ég halda. Þetta spil hefur vakið upp miklar

tilfinningar í gegnum tíðina, ég man til dæmis þegar við pabbi spiluðum það við Tinnu frænku sem varð að hætta

því hún grét svo yfir því þegar úlfaldar á ákveðnum reitum féllu úr óþekktum sjúkdómi! Sjálf er ég frekar...hhm...ja mjög

tapsár og sérstaklega í þessu spili. Því miður hefur Ástþór Örn erft eitthvað af þessu og Sigurður reyndi einu sinni að spila þetta

við okkur en gafst upp eftir að við mæðgin höfðum á víxl sakað hann um mikla spilahörku og svindl. Við spilum þetta því

gjarnan bara tvö og erum frekar diplómatísk og semjum gjarnan um jafntefli þegar svolítið er liðið á leikinn!!

 

 

Fyrsti nóvembermorguninn var ákaflega fallegur í sveitinni og veðrið yndislegt, stillt en svolítið kalt þó.

 

 

 

Við drifum okkur og heilsuðum upp á ungliðana okkar. Hér er nýjasta viðbótin í Dal, hann Nökkvi sem er eins vetra

 

 

 

Arnaldur Kári og ósýnilegt Seljafell!

 

 

Trýna og Ástþór Örn

 

 

 

Ekki leiðinlegt að leika sér svolítið með ísinn sem hafði myndast á túninu

og á pollum

 

 

Mér þótti aftur á móti gaman að mynda hrímuð laufblöð!

 

 

 

 

 

 

 

Kíktum aftur til hrossanna í góða veðrinu. Ástþór Örn að knúsa Frakk bless

 

 

Ein handa ömmu Kötu...Skuggi bað kærlega að heilsa og

sagðist ekkert vita hvaða flandur þetta væri á ykkur.

 

 

 

Við mæðgin tökum undir með síðasta ræðumanni :o)

 

 

 

Við biðjum að heilsa ykkur, hafið það öll gott.