25. október

 

 

Allt gott af okkur að frétta síðan síðast. Ástþór Örn fékk reyndar smá hita með kvefi í vikunni og var svolítið slappur einn dag en svo hitalaus og hress í aðra tvo, að lita,

lesa og spjalla!

Helgin hefur verið tíðindalaus og bara ósköp notaleg...nokkrar myndir af ærslafullum bræðrum, Arnaldi Kára að halda kaffiboð og úr Elliðaárdalsgöngu sem við fórum í í dag.

 

 

 

Það er alltaf nýuppáhellt kaffi og kökur í boði í horninu hjá Arnaldi Kára og spennandi útsýni þar sem kisur sýna sig

oft og fuglar sitja í trjánum. Paddington virtist líka þetta ansi vel allt saman og stjanaði Arnaldur Kári við hann.

 

 

Stúfur að æfa sig að telja...8 er í miklu uppáhaldi og vill hann eiginlega telja 1..8...2...8...3...8...og svo frv!!

 

 

 

Þessi stúfur er hress og kátur þessa dagana, unir sér vel á leikskólanum

og bætir við sig nýjum orðum endalaust.

 

 

Ástþór Örn og Arnaldur Kári ná yfirleitt mjööög vel saman í fíflagangi en eru nú líka voða góðir oft að lesa og dunda!

 

 

 

 

 

 

Við Elliðaá

 

 

 

 

Kanína að fela sig...sem svo stökk skíthrædd af stað þegar Ástþór Örn nálgaðist hana og Arnaldur Kári var

náttúrlega alveg óskaplega spenntur.

 

 

Ástþór Örn fær sér sæti

 

 

 

Arnaldur Kári vildi prófa líka

 

 

 

 

 

 

 

Hlaupið af stað...nú eða stokkið!

 

 

Komnir á miklar könglaslóðir...sem gladdi Ástþór Örn stórsafnara mjög mikið. Hann tekur alltaf með sér box

í gönguferðir ef hann skyldi rekast á fallega steina í safnið sitt sem er orðið ansi stórt og svo á hann könglasafn sem

myndi sjálfsagt nægja í jólaskraut heillar aldar!!

 

 

 

Við foreldrarnir vorum nú svo vond að setja könglakvóta í þessari ferð...annars

hefði hann tekið einhverja tugi með sér heim.

 

 

 

Kakópása á næsta leyti :o)

 

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn floginn af stað aftur eftir kakósopa

 

 

 

Bræður á heimleið