Haustmyndir
Kominn október og við ekki verið alveg nógu dugleg að uppfæra upp á síðkastið. Það má helst skrifa á annir og ekki síst tölvuleysi.
Í einni og sömu vikunni fór ég með tvær tölvur í viðgerð, önnur var dæmd ónýt en hina fékk ég gert við og get því haldið úti síðunni okkar áfram!
Nú svo flæddi hér inn hjá okkur og í þrjá daga í röð fór dágóður tími í að ausa upp vatni, þrífa og aðstoða pípara sem var að finna út úr hutunum og gera við.
En af þeim Ástþóri Erni og Arnaldi Kára er allt fínt að frétta. Það gengur vel í skólanum og á leikskólanum auk þess sem Ástþór Örn er alsæll að vera
byrjaðuraftur í myndlistinni.
Hér koma myndir, nokkrar síðan í lok september og svo frá byrjun októbermánaðar. Og það verða náttúrlega allir svo glaðir að síðan sé
loks uppfærð að við búumst við því að kveðjum rigni yfir okkur í gestabókinni!!!

Í september voru vinir okkar frá Svíþjóð, Guðrún, Einar, María og Hugi í heimsókn á Íslandi og með þeim var
lítil stjarna, hann Baldur Tumi sem fæddist í maí og var að koma til Íslands í fyrsta skiptið.
Við fengum þau öll í heimsókn til okkar og hér má sjá hvað við vinkonurnar erum forríkar;
Arnaldur Kári (21 mánaða), Ástþór Örn (6 ára), María (9 ára), með Baldur Tuma (3 mánaða) og Hugi (7 ára).

Arnaldur Kári var voðalega skotinn í henni Maríu, sem er skiljanlegt þar sem hún ægilega sæt og skemmtileg...
auk þess að eiga alveg voðalega fína myndavél sem Arnaldur Kári hélt að hann væri að kenna henni á!

Mér finnst reyndar voða skrítið að María sé ekki enn tæplega tveggja ára ef út í það er farið
og mér finnst þessi mynd líka voðalega sæt.

Og yndislegi herramaðurinn hann Baldur Tumi svaf vært framan af heimsókn
Vaknaður og kominn í pabbafang. Arnaldur Kári vildi svo ólmur vera sem mest í fangi Einars og fá alls kyns flugferðir
og kleinur. Hann myndi gjarnan vilja fá hann "Einak" fljótt aftur í heimsókn!!

Guðrún Lára, María og Baldur Tumi.

Ég má til með að monta mig og tilkynna það hér að ég er guðmóðir hans
Baldurs Tuma!

Ástþór Örn og litli vinur okkar

Hugi varð eftir í heimsókn hjá okkur og vildum við gjarnan að ekki væri nú yfir haf að fara til að þessir vinir
gætu hist oftar.

Eftir að hafa rætt Hringadróttinssögu, Tinna og fleira var málað, teiknað og spjallað enn meira.
![]()
![]()
![]()

Ástþór Örn að mála

Og á meðan sat þessi í rúminu hans stóra bróður og las og hoppaði

Fyrsta listaverkið klárt

Hér er lesið fyrir skólann á hverjum degi og þykir skólastráknum það oftast skemmtilegt!

Ástþór Örn er orðinn aðal lummubakarinn hér á heimilinu

Arnaldur Kári finnur á sér ef einhver er að hugsa um að það væri gaman að fara út..
hann er þá byrjaður að klæða sig og vill ólmur drífa fólk út!

Fórum í hjóla/göngutúr í fallegu haustveðri í byrjun október...áður en stormurinn berstrípaði trén

Ástþór Örn á síðustu metrunum á þessu hjóli, þarf að fara að fá stærra þegar fer að vora!

Styrndi fallega á laufblöðin sem sólin hafði ekki enn náð til

Ástþór Örn að kanna gamla leynistaði sem oft var farið á þegar hann var þarna með leikskólanum

Einbeittur hjólastrákur mátti ekkert vera að því að horfa í myndavélina

Bætt úr því hér!

Arnaldur Kári fékk aðeins að prófa líka

Á heimleiðinni var komið við á hinum fræga Gubburóló, þar sem Arnaldur Kári prófaði í fyta skiptið róluna sem
leikvöllurinn er kenndur við


"Fram fram fylking..."

Arnaldur Kári eldar og hrærir af miklum móð þessa dagana og aðspurður er hann yfirleitt að elda "ammælikaka"!

Þröngt mega sáttir sitja! Arnaldur Kári í leikhorninu sínu :o)
![]()
![]()
![]()