Septemberdagar
![]()
Jæja, þá koma nokkrar myndir og fréttir. Það er allt gott að frétta af okkur. Ástþór Örn í skólanum og Arnaldur Kári á leikskólanum, báðir mjög ánægðir. Ástþór Örn er í dægradvölinni eftir skóla og þar eru skákæfingar haldnar einu sinni í viku og svo er hann skráður í kórinn líka. Svo ætlar hann að halda áfram í Myndlistaskólanum og hefst önnin þar eftir rúma viku og er hann mjög spenntur. Arnaldu Kári er farinn að reyna að syngja Álfaheiðarskólasönginn fyrir okkur og þylur upp nöfnin á nokkrum félögum og fóstrunum! Bætast við ný orð á hverjum degi og maður farinn að þurfa að gæta orða sinna!

Um daginn skruppum við í Húsdýragarðinn, aðallega til að freista þess að krækja í krukku af íslensku hungangi

Þennan dag voru íslenskir býflugnabændur í heimsókn í garðinum...
já og við náðum í krukku af regulega góðu hungangi!

Við heimsóttum að sjálfsögðu íbúa garðsins líka :o)

Arnaldur Kári reynist vera alveg jafn mikill kisuaðdáandi og stóri bróðir

Í fjósinu!


![]()

Arnaldur Kári, sem er eiginlega alltaf í svona góðu skapi!

Hér má helst enginn tala í símann án þess að þessi herramaður fái líka að segja nokkur orð,
það getur kostað mikil leiðindi og grát hjá honum ef foreldrarnir hleypa honum ekki að.

Bræðraknús, hér var Ástþór Örn voða þreyttur eftir langan dag.


Þessi gaukur ekkert þreyttur eftir daginn sýnist mér :o)

Um daginn skruppum við, ég, Arnaldur Kári og Ástþór Örn í Heiðmörk
eftir leikskóla og skóla.

Arnaldur Kári fékk að smakka kakó í fyrsta skiptið á ævinni í Heiðmörk. Hann var ekkert á því að halda
áfram neinni göngu þegar var í boði að sitja, borða flatkökur og drekka kakó!

Fundum svolítið af sveppum

og hrútaberjum

Ástþór Örn ansi stoltur að bjóða upp á kanilsnúða sem hann bakaði í heimilisfræðum í skólanum

Ég vil benda lesendum á ný yfirdekkta stóla úr smiðju húsmóðurinnar!!

Lesið saman!
![]()

Í dag skruppum við í grasagarðinn


Endurnar höfðu mjög mikið aðdráttarafl!


Kapphlaup

Ástþór Örn í gegnum gosbrunninn

Þegar hér var komið við sögu lét Arnaldur Kári fara vel um sig í kerrunni, enda búinn að hlaupa í það minnsta skemmtiskokk
um garðinn!

Blómstrandi haustrós

Fallegir haustlitir


Arnaldur Kári er duglegur að finna bækur og kallar "Ástó...lesa" (svolítið smámælt reyndar!!).
Ástþór Örn les samviskusamlega allan texta fyrir litla bróður en oftar en ekki þykir Arnaldi Kára lesturinn nú aukaatriði
og vill skoða myndirnar.
![]()