Síðsumar í
sveitinni ![]()
Nokkrar myndir teknar í lok sveitadvalarinnar þetta sumarið. Búin að eiga góðar vikur þar og þótti Ástþóri Erni ægilega erfitt að kveðja hestana,
Pílu, Trýnu og náttúrlega ömmu og afa.

Berjasprettan hefur nú oft verið betri, enda sumarið allt of sólríkt og þurrt til að einhver berjamet yrðu slegin!
Ég náði að tína eitthvað af bláberjum og aðalbláberjum.

Í síðsumarblíðu á svölunum. Það er gaman að sjá hvað skjólbeltin og heimalundurinn hafa vaxið vel.

Stuð í sandkassanum :o)

Trjámyndin 2009! Ástþór Örn og birkitréð.
2008 2007

2006 2004

Arnaldur Kári greinilega með hugann við annað en birkitréð sem við ætlum að
mæla hann við næstu árin!!

Eitthvað verið að spá og spekúlera

Já þarna er það tréð!

Heilsað upp á Neista

Arnaldur Kári er voða hrifinn af öllum dýrunum og þá sérstaklega hestunum og ótrúlegt að sjá hvað þeir
eru passasamir þegar lítill stúfur er að rölta í gerðinu hjá þeim


Ástþór Örn og Léttir

Arnaldur Kári fékk aðeins að máta Frakk

Þetta er búið að vera mikið útreiðasumar hjá Ástþóri Erni, sem myndi helst
vilja fara á bak á hverjum degi!

Lagt af stað


Sigurður slóst svo í hópinn