Fleiri ágústmyndir úr sveitinni!

Arnaldur Kári hefur voða gaman að því að leika sér í sandkassanum og ekki verra
ef Píla eða Trýna heilsa upp á hann

Sætir sveitastrákar!

Um daginn fórum við í fyrsta sveppamó þessa síðsumars

Ástþór Örn fer alltaf og vitjar leynistaðarins síns í skóginum


Við settumst aðeins og fengum okkur hressingu í miðri sveppaleit




Gaman að hlaupa í háu grasinu

Við fundum svolítið af furusveppum, kúalubbum og lyngflosa sem enduðu í dýrindis rétti um kvöldið!

Fallegur stígur frá nátturunnar hendi

Við skruppum í fjöruna í yndislegu veðri, hefðum frekar átt að taka handklæði og bók en skóflur og fötur!!




Undir þessu barði hefði maður getað legið í hitamóki...þar til öldurnar hefðu vakið mann!


Arnaldi Kára finnst alveg óendanlega gaman í fjörunni

Hann þorir þó engum svona leikjum sem betur fer!



Í fyrradag var hér skyndilega voðalega hljótt og ég vissi ekki hverju ég átti að eiga von á...
nema hvað þá voru þeir bræður sestir saman og horfðu á myndina um Bolt!
Arnaldur Kári hefur nú ekkert verið kynntur fyrir sjónvarpi svo sem og Ástþór Örn ekki horft mikið í sumar
en það er aldrei að vita nema að Ástþór Örn fari að fá að dusta rykið af Múmínálfunum og fleiri gömlum vinum
og kynni fyrir litla bróður!

Hér hafði varla fallið dropi úr lofti síðan í júní og við reynt að vera dugleg að huga að plöntunum hér í kringum húsið.
En það var eins og mikið grunaði, um leið og ég var búin að bera hér vatn í tré og runna hér lengra frá húsinu
fór að draga fyrir sólu og í gær og í dag hefur rignt svolítið!

Arnaldur Kári er mjög svo liðtækur í vatnssullinu!

Og traktorar í öllum stærðum koma mjög sterkir inn. Hann veit fátt skemmtilegra en að fá að fara einn rúnt
með manni í dráttarvélinni.

Þeir nafnar hafa verið duglegir að fara á hestbak í sumar. Ástþór Örn er kominn með mikla hestabakteríu svo
ekki sé meira sagt og snýst ansi margt hjá honum um hestana!

Léttir ansi slakur og lét sér fátt um finnast þó að þeir bræður væru að skottast í kringum hann

Og var til í myndasyrpu og alls kyns uppstillingar!

Notalegt að halla sér upp að þessum fína "hægindastól"

Það var svo ekki annað hægt en að fara á bak líka!