Ágústmyndir...loksins!

 

Við búin að hafa það ansi fínt í sveitinni og loksins kem ég mér í að setja inn fyrri part ágústmynda! Nú fer því miður að síga á seinni hluta sveitadvalarinnar þetta sumarið og ég með svolítinn kvíðahnút yfir því að vera að fara með Ástþór Örn í skólann og

Arnald Kára í leikskólann næsta mánudag!

 

 

 

Kátir nafnar og aðeins alvarlegri Arnaldur Kári!!

 

 

 

Ástþór Örn stóð fyrir kósíkvöldi fyrr í ágúst í veiðihúsinu en þar sat hann og las í veiðibókinni og athugaði hvaða

nöfn hann þekkti þar!

 

 

 

Búinn að koma auga á Sigurð Ágúst Arnarson!

 

 

 

Það er nú stundum svolítil barátta á milli þessara bræðra en langoftast eru  þeir þó bestu vinir og alltaf jafn glaðir

þegar þeir hittast á morgnana. Ástþór Örn er nú oftast vaknaður á undan litla bróður og bíður spenntur eftir að

sá stutti vakni og þá er oft lesið aðeins í bók!

 

 

 

Arnaldur Kári gerir sig líklegan til að vippa sér upp úr rúminu...en hann hefur einu sinni

skellt sér alla leið og endað hágrátandi á gólfinu. Ástþór Örn þorði aldrei að reyna þetta

og fór meira að segja ekki einn og óstuddur fram úr "venjulega" rúminu sínu fyrr en

hann var orðinn ansi gamall!!!

 

 

 

Ástþór Örn náði þessari fallegu mynd af Arnaldi Kára!

 

 

 

Arnaldur Kári að sulla og leika, þetta rifjaði upp gamlar minningar um kaffihúsið sem

Ástþór Örn starfrækti fyrir utan gamla veiðihúsið þegar hann var örlítið eldri!

 

 

 

Afi Ástþór og Ástþór Örn að veiða í Svartabakka

 

 

 

Við Arnaldur Kári litum aðeins á Sigurð og þá nafna þegar þeir voru að veiða í byrjun ágúst

 

 

 

 

 

Ástþór Örn að dansa sýnist mér einna helst!!

 

 

Leiðin í Sjávarfoss er alltaf jafn skemmtileg fuglaskoðunarferð! Náði hér fjölskyldumynd af álftarfjölskyldu

 

 

Og andarungum að ferla sig undir barði á meðan mamman rak kjóa í burtu

 

 

Og ferðin í Sjávarfoss var stórskemmtileg því afi Ástþór veiddi tvo laxa og sjóbirting

 

 

 

Rjúpumamma sem við rákumst á á heimleiðinni

 

 

 

Klifurköttur niður við á!

 

 

 

 

 

Kominn á toppinn!

 

 

 

 

Á meðan Ástþór Örn klifraði leit ég eftir berjum. Það lítur svona þokkalega út með ber í ár hér á okkar svæði,

rigning hefði nú sjálfsagt hjálpað til við sprettuna.

 

 

 

Kvöldin hér í sveitinni hafa verið óskaplega falleg og ég fyllt myndavélina af myndum af fallegu sólarlagi!

 

 

 

Fjörumyndirnar hafa verið lítið færri!

 

 

 

 

 

Arnaldur Kári með Snæfellsjökul í baksýn

 

 

 

Ástþór Örn fjörustrákur

 

 

 

Við skruppum líka í Hofstaðarskóg og þar sá þessi herra ansi margt skemmtilegt

sem hann reyndi að benda okkur Ástþóri Erni á!

 

 

 

 

 

 

Í hólminum á leið í siglingu um Breiðarfjörð

 

 

 

 

Komin um borð í Særúnu, Sigurður, Ástþór Örn og Arnaldur Kári með Toni dóttur hennar Harriet og stráknum hennar honum Atilla

 

 

 

Afi Ástþór og hinir ömmustrákarnir hennar Toni, Charlie og Tom drifu sig aftur á móti á sjóstöng

 

 

 

 

 

Riturnar létu fara vel um sig í björgunum

 

 

 

 

 

 

Arnarparið stillti sér upp fyrir okkur

 

 

 

Og þarna er unginn þeirra hjóna

 

 

 

Mér þykir alltaf óskaplega gaman að hitta fyrir lunda

 

 

 

 

 

Ástþór Örn með hörpuskel, beitukóng og fleira sem endaði nú flest í sjónum

og vonandi átt þar lengra líf!

 

 

 

 

Mætt aftur í Dal! Arnaldur Kári fær aðeins að máta Dufgus

 

 

 

Ég vek athygli á peysunni sem Ástþór Örn er í...ég prjónaði hana einmitt handa honum!!!!

 

 

 

Allir á leið á hestbak

 

 

 

 

 

Frakkur var með einhverja takta og Harriet ákvað því að draga sig í hlé og ég tók við þar sem ekki var

hægt að hleypa Frakk í því skapi heim í gerði aftur!!

 

 

 

Daginn eftir var farið í lengri ferð og farið á fjörurnar. Ég og pabbi höfðum vaktaskipti á miðri leið. Ástþór Örn

var þarna í lengstu hestaferðinni sinni og skemmti sér konunglega.

 

 

 

Eftir vel heppnaðan reiðtúr og góða daga saman með Toni og fjölskyldu fórum við út að borða saman

á Langholt sem er afbragðs veitingahús ekki svo langt frá okkur

 

 

 

Arnaldur Kári hafði mikinn áhuga á því sem Harriet geymdi í töskunni sinni!

 

 

 

Ástþór Örn skemmti sér stórvel með Attila, Charlie og Tom og var duglegur að

reyna að tala ensku og lærði mörg ný orð. Við gátum ekki annað en hlegið þegar hann

missti jafnvægið augnabliki eftir að þessi mynd var tekin og sagði "Oh my God" með ansi enskum hreim!!!!!

 

 

 

 

 

 

Hér eru þeir nafnar með hann Neista, sem er þriggja vetra. Við höfum aðeins verið að venja hann við taum og

meiri kynnum við okkur mannfólkið, öllu hefur hann tekið af mikilli prúðmennsku.

 

 

 

 

 

 

Aðeins hvílt sig í hestastússi aftur í bílnum hans afa!

 

 

 

Hér má sjá hana Hnotu mína til vinstri, sem virðist ekki vera alveg fædd eins vel tamin og Neisti þó að

hún lofi nú alveg góðu samt sem áður og svo hann Mána til hægri. Á milli þeirra er eitt af fallegu folöldunum

hans Gísla.

 

 

 

Vonarpeningar stilla sér upp!

 

 

 

Það er svo von á fleiri myndum úr hestaferðum, fjöruferðum og af tveimur sætum sveitastrákum!