Sveitin í júlí

 

Við höfum haft það gott í sveitinni í júlí. Veðrið verið afskaplega gott þar til í fyrradag þegar fór að blása hraustlega. Við myndum nú þiggja smá rigningu, fyrir gróður og á en ekki enn orðið að þeirri ósk okkar!

Búin að fá góða gesti og gera margt skemmtilegt.

 

 

 

Arnaldi Kára finnst gaman að reyna að koma sér áfram á dráttarvélinni hans Ástþórs Arnar

 

 

 

Að blása sápukúlur í góða veðrinu

 

 

 

Snyrt í kringum trén!

 

 

 

 

 

 

Arnaldur (18), Gauti (13), Ástþór Örn (6) og Arnaldur Kári (1)...sem við vorum viss um að myndi

hafa gaman að því að hafa verið með á þessari mynd eftir nokkur ár þó að honum

hafi ekki verið skemmt á meðan myndatökunni stóð!!!!

 

 

Nafnarnir tveir

 

 

 

 

Þrír ættliðir saman í reiðtúr

 

 

 

Þeir nafnar hafa verið duglegir að fara í hestaferðir í sumar og gengið vel

 

 

  

 

Arnaldur Kári fór í klippingu um daginn og okkar fannst hann hafa elst voðalega við það! Ég sakna nú krullanna svolítið samt þó að mér

finnist hann voðalega fínn.

 

 

Afi Ástþór á Dufgusi og Arnaldur Kári fékk aðeins að setjast hjá honum og líkaði vel

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Um daginn fengum við frænkur okkar og einn frænda í heimsókn! Hér eru þeir frændur Arnaldur Kári og Gabriel Noor,

sem eru fæddir með rúmlega mánaðarmillibili í nóvember og desember 2007.

 

 

Gabriel að reyna að ná sambandi við steinsofandi Pílu!

 

 

Voðalega erfitt að halda sér vakandi í góða veðrinu!

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn í sólinni

 

 

 

 

 

Helga Kristín frænka mín með strákinn sinn hann Gabriel Noor og Sigurður og strákarnir

 

 

Frændur stilla sér upp!

 

 

Það var hægt að taka endalaust myndir af þessum sætu strákum

 

 

Ástþór Örn fann sig mjög vel í hlutverki stóra frænda jafnt sem stóra bróður!

 

 

 

Dagarnir hafa verið voða fallegir í sveitinni og kvöldin líka!

 

 

 

Arnaldur Kári að hringja

 

 

 

Langoftast er reynt að ná sambandi við afa

 

 

 

  

 

Einhverjum hugmyndum komið á blað!!

 

 

 

Um daginn fengum við Ásu, Simma, Sigurlaugu og Kristínu Rós í heimsókn

og var voðalega gaman að hitta þau öll. Ástþór Örn vildi náttúrlega helst

hafa þær í viku hérna nú eða fara bara með þeim til Vestmannaeyja

 

 

 

 

 

Fyrir nokkrum dögum var svolítið skrítið veður og nýir regnbogar birtust hver á eftir öðrum,

hér má sjá einn fallegan

 

 

 

Og annan stóran og bjartan

 

 

 

Svo kom nú smá kuldakast hér eins og víða annars staðar og fjöllin fengu sum hvíta hatta á miðju sumri

 

 

 

Andamamma niður við á

 

 

 

Mikill munur að koma að Sjávarfossi núna og í byrjun júlí því vatnið er orðið svo lítið í áni

 

 

 

Afi fékk nokkrar tökur og ég landaði tveimur sjóbirtingum og missti einn lax við lappirnar á mér...

alger klaufi.

 

 

 

Og enn fengum við gesti! Á laugardaginn komu Danni frændi, Magga konan hans og vinafólk þeirra

og fengu að tjalda hér rétt hjá okkur. Það var nú svo kalt að þau voru nú bara mest inni í hlýjunni hjá okkur.

Arnaldur Kári hér aðeins að knúsast hjá Möggu.

 

 

 

Í gær komu svo Eva, Torfi, Ragnhildur Edda og Bryndís Eva í heimsókn.

Það var glatt á hjalla, spjallað, leikið og ýmislegt brallað.

 

 

 

Ragnhildur Edda að lesa og mátti nú varla vera að þessum myndatökum!

 

 

 

Ragnhildur Edda er rosa góð stóra systir og knúsar hér Bryndísi Evu sem er tæplega fjögurra mánaða

 

 

 

Arnaldur Kári voða hrifin af þessum yndislegu krullum og vildi nú voða mikið vera að knúsa þessa

sætu stelpu! Það eru réttir þrír mánuðir á milli þeirra, hún fædd í lok september 2007.

 

 

 

Öll búin að koma auga á eitthvað mjög athyglisvert í Syrpunni hans Ástþórs Arnar :o)

 

 

 

Vonum að þið hafið það öll gott og sendum bestu kveðjur úr sveitinni