Norður og austur!

 

Eftir góða daga í sveitinni skruppum við alla leið austur á land. Þar vorum við í nokkra daga í bústað með Hröbbu systur afa Ástþórs, Valla manninum hennar og Guðrúnu vinkonu þeirra. Enn elti sólin okkur og við

áttum þar mjög góða daga.

Úr bústaðnum héldum við svo í Mývatnssveitina þar sem við fórum á fuglasafnið hans Geira heitins vinar okkar, heimsóttum Garðsloftið þar sem Maddý og Láki (móðursystkini Sigurðar)

og Helga Margrét (ein af ömmustelpum Maddýar) tóku ansi vel á móti okkur með kaffi og alls konar góðgæti. Litum svo inn hjá Gerði á Skútustöðum, en þurfum nú að komast sem fyrst aftur í sveitina

því við náðum nú ekki að líta á alla sem við ætluðum að heilsa upp á. Úr Mývatnssveitinni fórum við inn til Akureyrar og vorum hjá ömmu Hillu og afa Erni,

hittum þar líka Úlf frænda þeirra feðga...já og ekki má gleyma gauknum í klukkunni sem Arnaldur Kári hefur leikið eftir síðan!! Náðum nú ekki að líta til allra sem við ætluðum, en við reynum bara að láta ekki líða allt of langt þar til við verðum næst á Akureyri. Tókum allt of fáar myndir því kortið fylltist og enginn kapall eða tölva með í för.

Þetta er nú samt góð súpa engu að síður.

 

 

 

Bústaðurinn sem við vorum í er rétt á milli Egilsstaða og Hallormsstaðarskógs. Þar var leikvöllur og

líka minigolf sem sló alveg í gegn!

 

 

 

 

Það var yndislegt að labba í góða veðrinu og kyrrðinni í Hallormsstaðarskógi

 

 

 

Ástþór Örn var spenntastur fyrir því að skoða eikina í skóginum,

enda er hún nú ein af fáum hér á landi

 

 

 

Valli, maðurinn hennar Hröbbu frænku og við mæðgin við eikina

 

 

 

Ástþór Örn og Arnaldur Kári stilla sér upp við ein elstu trén í skóginum

 

 

 

 

 

 

 

Rákumst á þetta fallega fiðrildi sem hefur flækst til Íslands

 

 

 

Okkur þótti þessi vegvísir voðalega fyndinn!

 

 

 

Í Atlavík

 

 

 

 

 

 

 

Við fórum til Seyðisfjarðar og áttum þar mjög góðan dag.

Byrjuðum á að skoða Tækniminjasafnið, sem er í þessu fallega húsi

sem og smiðju við hliðina.

 

 

 

Ástþór Örn var mældur og vigtaður!

 

 

 

Okkur Sigurði og safnverðinum leið eins og við værum hundrað ára þegar við reyndum að kenna 6 ára strák á skífusíma!!!!

Honum fannst þetta alveg ægilega forneskjulegt og skildi ekki að nokkur hefði haft þolinmæði í að hringja löng símanúmer :o)

 Ég mundi nú líka að ég bræddi alltaf næstum úr okkar skífusíma þegar ég hringdi vikulega í vinsældarlista Rásar 2 þegar

ég var á aldur við Ástþór Örn!!!

 

 

 

Í gömlu vélsmiðjunni

 

 

 

 

 

Það var voðalega notalegt að rölta um bæinn í góða veðrinnu

 

 

 

Picnic við bláu kirkjuna

 

 

 

Litli mathákur á röltinu með brauðið sitt

 

 

 

 

 

 

Fórum á leikvöll, sem sló alveg í gegn!

 

 

 

 

 

Eftir að hafa leikið sér þarna dágóða stund og komist að því að sundlaugin

var þarna við hliðina á leikvellinum komst Ástþór Örn að þeirri niðurstöðu

að hann gæti vel hugsað sér að búa á Seyðisfirði!

 

 

 

Með barnaskólann í baksýn

 

 

 

Veit ekki nema að Ástþór Örn hafi verið farinn að hugsa sér flutninga fyrir alvöru því hann var alla vega farinn að leika

sér við nokkra krakka í bænum!

 

 

 

Fengum okkur kaffibolla á Hótel öldunni áður en við héldum aftur yfir Fjarðarheiðina

 

 

Litum í kaffi til Margrétar Birnu vinkonu minnar og mér þótti tilvalið að fá mynd af okkur með örlítið brot af

öllu útsýninu sem hún hefur

 

 

 

Hópmynd á veröndinni, Arnaldur Kári, Sigurður Ágúst með Ástþór Örn fyrir framan sig, svo Valgarður, Hrafnhildur og Guðrún

 

 

    

 

Á snjóbreiðu rétt við Jökulsá á Fjöllum

 

 

 

Herðubreið í hitamistri

 

 

 

Komin í Mývatnssveitina...Ástþór Örn að reyna að bera sig vel í fýlunni á Hverarönd

 

 

 

Föst regla á Hverarönd að ganga eftir pallinum sem við Sigurður smíðuðum 1997!!!!

 

 

 

Við fórum svo og heimsóttum fuglasafnið við Ytri-Neslönd í Mývatnssveit. Þar er búið að byggja fallegt hús þar sem má

sjá fuglasafnið hans Geira heitins vinar okkar. Við mælum með hiemsókn á fuglasafnið.

 

 

 

 

 

 

Á Skútustöðum var nýbúið að slá og Sigurður sýndi Ástþóri Erni smá nostalgíutakta þegar hann hoppaði yfir garðana

 

 

 

 

 

Af hlaðinu hjá Gerði, Bláfjall og Sellandafjall

 

 

 

Úr Mývatnssveitinni fórum við til Akureyrar og vorum þar í sól og blíðu

 

 

 

Í Lystigarðinum

 

 

 

 

 

Ástþór Örn og Matthías

 

 

 

Arnaldur Kári ekki í myndastuði

 

 

 

Ástþór Örn áhugasamur um blómin

 

 

 

...og það er mamma hans reyndar líka!!

 

 

 

Bóndarós alveg að springa út

 

 

 

Með álfunum í garðinum hjá ömmu og afa