Sveitin í byrjun júlí
Erum búin að vera netsambandslaus/tölvulaus undan farið og því hefur ekkert verið uppfært, en það er nú kominn tími til að sýna nokkrar myndir og segja smá fréttir af okkur.
Í byrjun júlí vorum við nokkra daga í sveitinni og var dagskráin undirlögð í veiði og fjórðungsmóti á Kaldármelum! Úr sveitinni fórum við svo norður og austur. Við byrjum á byrjuninni, hér koma sveitamyndir.

Kríurnar hafa verið ansi áberandi í sveitinni og við fengið að kenna á þeim!

Um leið höfum við ekki getað annað en dáðst af eljunni í þeim að verja sitt já og flugtækninni


Á leiðinni niður í Sjávarfoss hitti ég fyrir þetta álftapar með fjóra unga

Píla og Sjávarfossinn

Falleg blóðbergsbreiða við ána

Og mig minnir að þetta sé Músareyra

Og hér held ég að ég hafi rambað á Tágamuru

Enginn lax vildi á land en við kræktum í nokkrar bleikjur í soðið

Þegar ekki var verið að veiða vorum við ansi mikið á Kaldármelum. Þar var sól og hiti alla dagana og maður
hugsaði til þess hvernig stemmningin hefði nú verið í roki og rigningu!

Þar var oft mikil spenna og gaman að fylgjast með. Hér er hún Sara, hálfsystir mín í keppnishringnum á henni
Dívu. Það var gaman að fylgjast með þeim enda stóðu þær sig mjög vel!

Í um það bil hálftíma var ástæða til að fara í jakka og sitja undir teppi

Myrkva, sem þau Dalshjón eiga helming í varð í öðru sæti og við að sjálfsögðu ansi montin

Af Kaldármelum var svo stefnan tekin í vöðlurnar og ofan í á!
Ég náði nú "bara" einum laxi í þessari ferð...sem er kannski ágætt
miðað við ástundun.

Við komusmt þó að því að Píla er meiri fiskifæla en Trýna,
því það veiðist mun sjáldnar á Píluvakt!

Afi Ástþór í fossinum

Við mæðgin sátum í kaffi- og súkkulaðipásu á meðan afi reyndi við laxinn

Ástþór Örn við fossinn. Hann var hér að jafna sig á mikilli kríuárás en við mæðgin urðum fyrir barðinu á þeim
á meðan ég var að þreyta og landa laxinum!

Við fórum sátt og glöð heim með einn lax

Má til með að láta fylgja mynd sem ég tó á leiðinni heim úr Sjávarfossinum af einum af mínum uppáhaldsfuglun,
Sandlóunni. Mig langar alltaf jafn mikið að ættleiða...eða það heitir kannski bara stela einum unga þegar
ég sé þá veltast um á leiðinni niður í foss.

Það hljóp á snærið hjá Ástþóri Erni um daginn þegar hann fékk að aðstoða Sigurð í veiðinni og kom heim með vænan
lax. Hann sá um að vigta og mæla, mjög stoltur.
Arnaldur Kári er nú enn ekki mjög spenntur fyrir laxveiðinni

en þeim mun spenntari fyrir bílum og traktorum!

Þeir nafnar að koma úr reiðtúr. Ástþór Örn að reyna að verjast flugunum!

Fallegt sólarlag í sveitinni.