29. júní
Svolítið af myndum teknar á síðustu metrum júnímánaðar, njótið vel!

Þessir bræður fíflast ansi mikið og er sá yngri farinn að sækja mjög í kítl og hamagang
hjá stóra bróður!

Ástþór Örn er ansi liðtækur í eldhúsinu og það má helst ekki baka neitt án þess að hann sé ekki mættur til að fá að
mæla allt í deigið. Hann fékk svo loksins að baka eitthvað alveg sjálfur...og bregða sér aðeins úr hlutverki hjálparkokks!
Hann bakaði lummur og var heldur en ekki stoltur af sjálfum sér á eftir.

Þær runnu ljúflega niður...Sigurður missti reyndar af öllu þar sem hann var í vinnunni. Ástþór Örn passaði þó
að sjálfsögðu upp á að geyma nokkrar svo að hann gæti smakkað þegar hann kom heim :o)

Mætt í Kópavogslaugina síðasta föstudagsmorgun þar sem Ástþór Örn var í síðasta sundtímanum sínum og
foreldrar máttu koma og sjá hvað allir voru orðnir duglegir! Á meðan við biðum eftir að krakkarnir kæmu
út náði ég þessari mynd af samstilltum sundleikfimihópi.

Kátir sundkrakkar!

Ástþór Örn var stundum í svolitlum vandræðum þegar hann reyndi að tala við félaga sína um leið og hann synti!

Svolítið einbeittari hérna en þó ekki allt of hrifinn af því að það gusaðist mikið framan í hann

Arnaldur Kári var mjög spenntur fyrir þessu baði og þurfti að hafa sig allan við að halda honum á bakkanum

Kátur með að hafa lokið köfunarþrautinni! Eftir að hafa sýnt bringu-bak og skriðsund og smá köfun
fengu krakkarnir að fara í rennibrautirnar og var þessi tími mikil og stór stund hjá Ástþóri Erni því hann
missti sína fyrstu tönn...en það var búið að bíða ansi lengi eftir því!

Þessir eru nú eiginlega alltaf til í svolítinn fíflagang



"Fram fram fylking" rétt fyrir háttinn!

Í morgun skruppum við í Húsdýragarðinn í góða veðrinu

Við vorum spenntust að kíkja á kóp sem kom í heiminn daginn eftir að við vorum þarna síðast!
Við gátum nú ekki betur séð en að það hefðu tveir ef ekki þrír kópar bæst í laugina og hér er
einn alveg ægilega þreyttur að teygja sig!


Spennandi að fá að halda á krossfiski í Vísindatjaldinu




Arnaldur Kári heilsar upp á hænurnar

Þessi var ekkert á því að leyfa honum að skoða sig neitt

Þessi mamma passaði ungann sinn vel

Okkur fannst hann alveg ægilega mikil dúlla

Svolítið eins og að vera nýfæddur en í skóstærð 44!!!!

Það er svolítið fyndið að upplifa Ástþór Örn ábyrgðarfullan að passa litla bróður
um leið og Arnaldur Kári er afskaplega upptekinn af því að vera einmitt alveg frjáls
þarna á ferðinni og þurfi bara engan til að passa sig!
Þessar hugmyndir fara ágætlega saman, þó að Arnaldur Kári láti nú alveg í
sér heyra ef honum finnst sér settur stóllinn fyrir dyrnar.

Við ákváðum að labba um grasagarðinn líka og Arnaldur Kári þurfti heilmikið að skoða þessi blóm...
eða "blah" eins og hann kallar þau.

Og þar sem hann er heilmikið fyrir "blah" er nóg að gera þegar komið er í Laugardalinn!




Ég stóðst ekki mátið og tók nokkrar blómamyndir, til dæmis þessar tvær af yndislegu Freyjugrasi
sem hefur jú mikinn mátt! Það er haft til að koma upp um þann sem hefur stolið frá manni segir þjóðsagan.
Fyrst skal það liggja þrjár næstur í vatni, leggja síðan undir höfuð sér og sofa á og mun maður þá sjá þann er stolið hefur.
Þar hafið það það!





Ástþór Örn spretthlaupari


Hermt eftir!

Á leiðinni heim!