Örstutt sveitaferð!

 

 

Við skruppum laugardaginn 20. júní sveitina og komum aftur heim á sunnudagskvöldi. Náðum samt að gera heilmikið og halda smá afmæli með afa Ástþóri 21. júní.

Farið í pottinn, að veiða, á hestbak, trjáplöntun undirbúin svo eitthvað sé nefnt. Nokkrar myndir!

 

 

Það hafði aldeilis grænkað í sveitinni frá því við vorum þar síðast

 

 

 

 

 

Ástþór Örn kominn í veiðigallann

 

 

 

Afi að setja réttu fluguna undir

 

 

 

 

  

 

Það vildi nú enginn bíta á í þetta skiptið!

 

 

 

Rent fyrir silungi á neðsta svæðinu, enda kaststöng ekki leyfileg í sjálfri ánni...en það bara skildi Ástþór Örn ekki

og vildi að þeim reglum yrði breytt fyrir hann í starhasti.

 

 

 

Við mæðgin á baki. Það gekk vel og við skemmtum okkur konunglega. Ég fór með afmælisbarni dagsins í smá ferð

út fyrir gerðið og Ástþór Örn hlakkar mikið til þegar hann getur farið að fara í alvöru reiðtúra í framtíðinni.

 

 

 

Við reyndum að halda smá sýningu líka!

 

 

 

 

Þegar var haldið í bæinn aftur var nú kominn háttatími og þessi kútur fékk

því snudduna sína en annars sér hann alveg sjálfur um að skila þeim undir koddann

þegar farið er úr rúminu á morgnana.

 

 

 

Ástþór Örn hámar í sig hundasúrum í leyniskóginum hans!

 

 

Áður en við fórum heim gróðursettum við Glótopp sem við gáfum afa í afmælisgjöf

 

 

 

Við vonum að kuldaboli og félagar verði ekki allt of harðir við þennan nýbúa!

 

 

 

Á leiðinni heim blasti við okkur þessi fallegi alveg heili regnbogi, góður endir á góðri ferð!