19. júní hér og þar!

 

         

 

Það er aldeilis að tíminn líður! Júní meira en hálfnaður og Arnaldur Kári orðinn hvorki meira né minna en eins og hálfs árs. Fór í "ástandsskoðun" nokkrum dögum áður en áfanganum var náð og gekk allt vel

og leist barnalækninum og hjúkrunarfræðingnum vel á stráksa. Hann reyndist vera orðinn rúmlega 12 kíló og rétt um 85 cm. Við höfum nú annars haft það bara gott hér heima, þar sem Sigurður tók sér svolítið feðraorlof

til að láta minna af því brenna inni eftir 19. júní, nóg var það nú samt sem gerði það. Hér eru myndir á síðustu dögum fjölskyldufrís.

 

 

 

18 mánaða snáði bíður eftir hafragrautnum í morgunmat

 

 

Frekar fúll með það hvað stóri bróðir einokar þennan ruggandi snigil

 

 

Jafnvægisæfingar

 

 

Arnaldur Kári gengur hér oft um allt með stút á munninum og vill að allir fái koss...þar eru fiskarnir ekki undanskildir

og ég náði mynd af honum um daginn þar sem hann var búinn að draga stól upp að kommóðunni sem fiskabúrið

stendur á og smellti á það rembingskossi!

 

 

 

Sápukúlur blásnar af miklum móð

 

 

 

Arnaldi Kára fannst mjög ósanngjarnt að fá ekki að sulla svolítið í þessu líka

 

 

 

Skruppum í grasagarðinn í Laugardalnum

 

 

 

 

 

Stór, stærri, stærstur!

 

 

 

Þetta var eini andarunginn sem við komum auga á

 

 

Stór gæsafjölskylda á hlaupunum undan mjög svo áhugasömum eins og hálfs árs fuglaskoðara

 

 

 

 

 

Blómin og þessi spjöld með heitunum á þeim vöktu ekkert minni athygli en fuglarnir

 

 

 

  

 

 

 

 

Á leið heim