Leikskólalok, reiðnámskeið og fleira!
![]()
![]()
Hér hefur vikan liðið ansi hratt og á föstudaginn fór Ástþór Örn í leikskólann í síðasta sinn...ansi skrítið finnst okkur! Hann byrjaði á reiðnámskeiði síðasta mánudag og fór eftir hádegið alla vikuna. Farið í reiðtúra á hverjum degi og Ástþór Örn mjög ánægður. Eftir helgina bætist svo sundnámskeið við, þannig að það er nóg að gera! Arnaldur Kári er alltaf ægilega spenntur þegar farið er með Ástþór Örn en ekki síður ef hann fær að fara með þegar hann er sóttur...skemmtilegra að keyra í burtu með stóra bróður innan borðs.

Á miðvikudaginn kom Ástþór Örn heim úr leikskólanum með hann Snúlla með sér. Snúlli er bangsi sem krakkarnir á Hjalla skiptast á
að bjóða heim í nokkra daga. Ástþór Örn var núna eins og síðast með mjög metnaðarfulla áætlun fyrir Snúlla og reyndi ekki að leyna
vonbrigðum sínum þegar hann komst að því að hann ætti að skila Snúlla á föstudegi og fengi ekki helgina með honum!
En Snúlli náði nú að gera heilmikið með okkur á þessum tveimur dögum og hér fékk hann að koma með að sækja Ástþór Örn í
reiðskólann, sem er í Víðidalnum.

Ég sé hér að það hefur bara alveg gleymst að spenna Snúlla niður!

Ástþór Örn á Maríubílnum og Snúlli á Tommalestarvagninum hans Arnaldar Kára!

Arnaldur Kári fékk nú líka að leika svolítið með þeim og var ansi spenntur fyrir bangsanum.

Ástþór Örn lánaði Snúlla einn af uppáhaldsbolunum hans með mynd af Svarthöfða

Já já, þetta eru aðallega Snúlla- og Ástþórsmyndir!!! Hér eru þeir á leið í afmæli til Konráðs Elí,
vinar Ástþórs Arnar af leikskólanum.

Svo var spilað og þeir félagar unnu mig í Gettu hver? Því miður hefur Ástþór Örn erft eitthvað af tapsárni minni og
er því stundum að reyna að hagræða reglum sér í hag eða hvarta yfir spilahörku í andstæðingnum ef illa gengur.
Ég finn nú eitthvað svo til með honum að ég leyfi honum oft að vinna mig en Sigurður er harðari í horn að taka þykir okkur!!

Og hér ein af snúllanum okkar! Arnaldur Kári kominn í náttföt og farinn að þora almennilega í inniskóna sem Kader og Sezgin gáfu honum í janúar ;o)

Á föstudagsmorguninn fór þessi stóri strákur í leikskólann í síðasta skiptið.

Við sóttum Ástþór Örn eftir hádegismatinn en þá voru þeir Hjallakrakkar að fá að prufukeyra hoppikastala sem
var búið að setja upp á skólalóðinni vegna sumarhátíðar eftir hádegið og fá andlitsmálningu. Ástþór Örn hér með möppuna sína,
afmælismyndina sína sem hefur verið á afmælisdagatalinu á leikskólanum og fleira. Við foreldrarnir vorum næstum farnir að
hágrenja þegar við kvöddum. Ég gat huggað mig við það að ég færi með Arnald Kára á þennan góða stað í haust,
annars hefði ég nú alveg háskælt get ég sagt ykkur!

Ástþór Örn hætti fyrr í reiðskólanum til að komast aðeins á sumarhátíð leikskólans. Ég tók létt föt með en hann
vildi endilega fá að mæta í reiðfötunum og sýna sig svolítið!

Arnaldur Kári fékk að sjálfsögðu að koma með!

Sigurður kvartaði undan því að það væri erfitt að ná mynd af okkur mæðginum saman...
líklegast rétt því þetta var sú skásta!

Ástþór Örn að kynna Arnald Kára verðandi nemanda á Álfaheiði!


Ívar Orri og Ástþór Örn


Leikskólalóðin var vel skreytt og veðurguðirnir voru sem betur fer í góðu skapi þennan dag!


Hoppukastalarnir mjög vinsælir

Seinni partinn kom Reynir í heimsókn og hér sitja þeir félagar úti í góða veðrinu og leika í sandinum

Ástþór Örn að lita í morgun. Það var svo engin miskunn og farið í reiðskólann klukkan 12, aukatími þar sem
lokað verður á 17. júní!

Arnaldur Kári kemur stundum með svakalegan stút á munninum og vill fá koss! Hér vildi hann endilega fá einn
frá stóra bróður.

Ástþór Örn fylgist spenntur með barnaefninu en Arnaldur Kári er upptekin við stólaklifur

Gott að kúra svolítið inn á milli!

Mjög gaman að kubba...svona þegar má ekki vera að fikta eitthvað inni hjá stóra bróður :o)
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()