Akureyri í byrjun júní
![]()
Við skruppum til Akureyrar í nokkra daga. Það var mjög skemmtilegt þó að við hefðum nú kannski ekki alveg náð að gera eins mikið og stóð til því Arnaldur Kári varð lasinn.
En þrátt fyrir það höfðum við það voða fínt hjá afa og ömmu í Litluhlíðinni og þökkum góða daga. Vorum nú ekki alveg nógu dugleg að taka upp myndavélina en hér eru nú samt nokkrar!

Feðgarnir á röltinu í góða veðrinu

Áður en við fórum til Akureyrar bað Ástþór Örn um að það yrði farið í Kjarnaskóg,
sem og við gerðum að sjálfsögðu!

Tvær kynslóðir klifurkatta :o)


Hengibrúin stórskemmtilega


Ástþór Örn fór þó nokkrar ferðir í þessari rennibraut


Arnaldur Kári var ekkert hrifinn af rennibrautunum eða rólunum og fannst skemmtilegast
að rölta um og heilsa upp á fólk og hunda í sólbaði!

Kíktum aðeins í jólahúsið og það er alltaf gaman að leika aðeins í garðinum þar fyrir utan

Afi Örn og Ástþór Örn eru báðir miklir aðdáendur jólahússins og
jólanna bara almennt! Amma var heima að baka lummur á meðan við
spókuðum okkur um í jólahúsinu.

Þessi litla lús tók upp því að rjúka upp í hita og var því bara í náttfata- og kúristemmningu seinni hluta ferðarinnar.

Amma Hilla og Ástþór Örn spiluðu dómínó af kappi og Ástþór Örn raðaði upp og hélt sýningar þegar
kubbarnir voru látnir rúlla af stað.
![]()