Lok maí - byrjun júní    

 

 

Þá er júní genginn í garð og vonandi að sumarið sé alveg komið!! Síðustu dagar hafa verið ósköp notalegir hér hjá okkur og við getað verið heilmikið úti við.

Ástþór Örn mun hafa nóg að gera í júní því hann er að byrja á reiðnámskeiði eftir tæpa viku og fer svo líka á sundnámskeið! Nóg að gera :o)

Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar á síðustu metrum maímánaðar og svo í júníbyrjun.

 

 

           

 

Arnaldur Kári í feluleik

 

 

 

Ástþór Örn í Power Ranger búningi sem hann keypti sér í London.

Hann hafði nú ætlað að kaupa sér fótboltabúning en var svo

alls ekki viss hvaða lið hann átti að velja og var farinn að blanda saman

buxum frá einu liði, treyju frá öðru og sokkum frá hinu þriðja þegar hann

sá að það væri nú bara best að bíða aðeins með svoleiðis!!

 

 

 

Arnaldur Kári kátur og hress

 

 

 

Við fengjum Björgu til okkar í kaffi fyrir helgina. Arnaldur Kári var nú fyrst eitthvað hálf fúll en það var sjálfsagt

vegna þess að Sveinn var ekki með í för! Hann var þó fljótur að taka Björgu í sátt, enda ekki annað hægt!!

 

 

 

Ástþór Örn að vökva með vatnsbyssunni...það hefur einu sinni gerst að íbúi í húsinu hafi fengið

gusuna yfir sig en það bjargaði því að sá er ansi geðgóður og þótti það bara sniðugt...en ekki okkur

foreldrunum eins!!

 

 

 

Arnaldur Kári skemmtir sér alltaf stórvel á svölunum og kallar hátt

"hæja" þegar einhver labbar fram hjá

 

 

 

 

 

Bræður að knúsast eitthvað

 

 

 

Ástþór Örn með myndabrosið :o)

 

 

 

 

Á hvítasunnudag skruppum við í Húsdýragarðinn í góða veðrinu

 

 

 

Arnaldur Kári var nú svolítið minni í kerru þegar hann kom í garðinn síðast og

óð núna hinn spenntasti um allt. Þótti þessar girðingar sem skildu hann og

dýrin að hins vegar mikill óþarfi!

 

 

 

 

 

Vísindatjaldið alltaf jafn vinsælt og þessi rafbylgjukúla hefur mikið aðdráttarafl

 

 

 

Litlir grísir að hvíla sig

 

 

 

Arnaldur Kári búinn að nái góðu sambandi við eina af geitunum og var því ekkert að taka þátt í myndatöku

 

 

 

Þessi litli bróðir er alveg jafn mikill kisustrákur og stóri bróðir

 

 

 

 

 

Stikað stórum!

 

 

 

Þessi strákur alltaf jafn sætur ;o)

 

 

 

Arnaldur Kári með nýjum tígra sem Ástþór Örn kom með handa honum frá útlöndum

 

 

 

Það er orðið ansi flókið að ná þokkalegum myndum af þessum pésum saman get ég sagt ykkur!

 

 

                                      

 

 

 

Í gær var himneskt veður og notalegt að sitja úti í sólinni og lesa nú eða kúðra prjónaverkefnum eins og ég!

 

 

 

Sumarstúfur

 

 

 

 

 

Seinni partinn stóð svo Sigurður fyrir pönnsukaffi, við að bíða eftir að staflinn verði borinn á borðið!

 

 

 

Uppteknir við að setja á pönnukökurnar og líta ekki einu sinni upp...

 

 

 

Okkur finnst voða stutt síðan Ástþór Örn smellpassaði í þennan stól.

Nú er Arnaldur Kári búinn að slá eignarhaldi á hann

 

 

Arnaldur Kári elskar að fá að leika aðeins með þegar Ástþór Örn fær heimsókn en gestirnir eru svona misánægðir!!

Arnaldur Kári og hann Reynir eru orðnir góðir vinir og Arnaldur Kári fær því oft aðeins að líta inn til þeirra og vera með,

eins og í dag.