Dalshelgi í maí

 

Við drifum okkur í sveitina um helgina og áttum þar góða daga. Hér eru því fleiri sauðburðarmyndir, enda mörg bæst við á einni viku og þau sem voru þá oggulíitl allt í einu orðin ansi pattaraleg!

Þökkum svo fyrir kveðjurnar í Gestabókina, okkur finnst alltaf gaman að þeim!

 

 

 

Að morgni föstudags bar Eik, kindin mín tveimur myndalegum gimbrum.

 

 

 

Rétt á eftir Eik bar svo hin kindin mín hún Fura hrút og gimbur. Fura og Eik eru frænkur og mé finnst ágætt að halda utan

um þennan ættlegg með nöfnumaf svipuðu tagi! Það var víst svo kolvitlaust veður þegar Fura bar að pabbi nefndi lömbin Storm og Golu - sjáum hvað verður ef annað verður ásetningur!

 

 

 

Mig langaði nú mest að taka bara lambið með heim.

Ég hef hingað til aðeins fengið alhvít lömb og þótti því gaman að fá mislit að þessu sinni.

 

 

 

Ástþór Örn og hinn síljúfi hrútur Baugur

 

 

 

Stillt upp fyrir myndatöku!

 

 

  

 

Á föstudagskvöldið var svoooo mikið rok en líka ákaflega falleg vindsorfin ský!

 

 

 

Afi Ástþór og Arnaldur Kári heilsa upp á kindurnar

 

 

 

 

Á laugardaginn var aftur á móti fínasta veður og við vorum úti nánast allan daginn

 

 

 

Loksins náðist mynd af Kára litla og Lappa saman!!!!

 

 

Ástþór Örn og Gísli búnir að sækja rúllu til að setja út í gerðið hjá kindunum

 

 

 

 

 

Ástþór Örn fékk aðeins að leika hamstur áður en grindinni var

komið fyrir :o)

 

 

 

Í vikunni á undan var búið að vera ansi kalt og vindasamt og því ekki hægt að hleypa kindunum með lömbin sín út

fyrr en á laugardag.

 

 

 

 

 

Dormað í vorsólinni

 

 

 

 

Hér er hún Álfmóra, kindin hans Sigurðar ásamt sínum lömbum.

 

 

 

 

 

Steinunn dreif sig með okkur í sveitinna og hafði engu gleymt í sveitastörfunum, stóð vakt í fjárhúsinum og fleira!

 

 

 

Píla og Trýna greinilega komið auga á eitthvað áhugavert

 

 

  

 

Arnaldur Kári eitthvað að spá og spekúlera!!

 

 

 

Og hér er hann aftur, nývaknaður hjá ömmu Kötu

 

 

 

Ástþór Örn dreif traktorinn sinn út

 

 

 

 

 

Smá pása í plöntun

 

 

 

Verið að planta svolítið af trjám nær húsinu, mun kannski veita svolítið skjól í framtíðinni!

 

 

 

Nóg að gera í sveitinni.

 

 

Sunnudagsmorgunn og Ástþór Örn eitthvað upptekinn í tölvunni...

Arnaldur Kári stórhætturlegur þegar hann stendur svona upp á stólum.

 

 

Arnaldur Kári og Steina stórvinkona hans

 

 

 

Síðan á föstudag höfðum við beðið eftir að Fíona, kindin hans Ástþórs Arnar myndi bera. Á sunnudagsmorguninn

dró svo loks til tíðinda og hún bar stórri og fallegri gimbur.

 

 

Seinna um daginn fékk Ástþór Örn aðeins að halda á þessari fínu gimbur,

sem hann hefur ákveðið að eigi að heita Verona ef hún fær að vera í

fjárhúsunum áfram.  Við vonum það besta og Ástþór Örn heyrðist

á sunnudaginn reyna að fullvissa Gísla og afa Ástþór um það að hér

væri á ferðinni "öruggur ásetningur".

 

 

Og hér er ein handa Kristínu Rós af henni Ísabellu með þrílembingana sína.

Við getum glatt hana  með því að móður og börnum heilsast vel!

Tvær gimbrar og einn hrútur.

 

 

 

 

 

 

 

Kúrt inni eftir öll hlaupin úti í gerðinu