Vordagur og útskrift af leikskólanum
Í síðustu viku fundum við aðeins fyrir vorinu. Voðalega notaleg tilfinning! Á föstudaginn var svo opið hús á leikskólanum með danssýningu og útskrift. Það var voðalega gaman en skrítin
tilfinning í brjósti foreldranna að nú væru börnin á leið í skóla! Hér eru nokkrar myndir úr garðinum og svo frá opna deginum á leikskólanum.

Feðgar í vorsólinni

Við Sigurður drifum okkur í smá garðvinnu í síðustu viku. Arnaldur Kári lék sé í sandkassanum og
gekk aðeins um garðinn á meðan.

Þegar við vorum búin að vera í garðinum í lengri tíma var Arnaldur Kári orðinn svolítið þreyttur á þessu arfaróti og fékk
því snudduna sína, sem hann er nú annars bara með þegar hann leggur sig eða fer að sofa. Í því birtist þessi kisa og
bjargaði alveg deginum!


Hér erum við svo mætt á Álfaheiði. Strákarnir og Rannveig Lilja að gera sig klár að bjóða upp í fyrsta dansinn,
stelpurnar buðu svo upp í næsta!


Ástþór Örn og Guðríður vinkona hans gera sig klár ásamt öllum hinum fínu danspörunum!

Mikil tilþrif!

Svo mikil að skyrtan var kominn upp úr!

Eftir danssýningu var komið að útskriftinni. Hún var haldin óvenju snemma í ár þar sem mörg börn fara snemma í frí
og eitt þeirra er að flytja til útlanda.

Hjallakrakkarnir sungu nokkur lög áður en útskrifin hófst. Fyrst sungu þau Sá ég spóa í keðju, sem heppnaðist mjög vel
enda búið að æfa lengi!

Spóar stinga saman nefjum!

Elísabet skólastjóri og spenntir krakkar!

Ástþór Örn og hinir krakkarnir fengu rós, viðurkenningarskjal og bók

Á morgun er Ástþór Örn og þó nokkur af deildinni hans að fara í svo kallaðan vorskóla í Digranesskóla,
þar sem við foreldrar förum með og fáum aðeins að vita hvað bíður okkar!!