Síðustu dagar vetrar og fyrstu af sumri!
![]()
![]()
![]()
Gleðilegt sumar!! Hér eru nokkrar myndir síðustu viku sem einkenndist af próflestri og myndlist svo fátt eitt sé nefnt!

18. apríl var haldið opið hús í myndlistaskólanum hjá Ástþóri Erni. Hérna stillir hann sér upp við framlag
nokkurra 6-9 ára krakka skólans, þar á meðal hans sjálfs!

Þessi fallega önd er núna komin hingað heim og gleður augu



Hrabba og Valli komu í heimsókn í myndlistarskólann og buðu okkur svo í vöfflur og kaffi,
Arnaldur er alltaf fljótur að koma sér að píanóinu þegar við erum þar!!

Arnaldur Kári kátur á sumardaginn fyrsta

Mikið stuð hjá þessum alltaf. Ástþór Örn fékk markmannahanska í sumargjöf og hefur verið í þeim
nánast alveg síðan!


Aðeins á rólegri nótum!


Í gær skruppum við á Listasafnið með afa Ástþóri

Aðalerindið var að skoða sýningu þar sem nokkrir nemendur Myndlistaskólans í Reykjavík
áttu voðalega falleg verk

Ástþór Örn á þetta fallega gifsverk sem er hluti af Flæðarmálinu


Í gærkvöldi fórum við og borðuðum í Langagerðinu og hér stytta þeir sér
stundir fyrir matinn!!

Í tilefni sumarbyrjunar blésu Ástþór Örn og Anika Rut sápukúlur!

Arnaldur Kári fyldist spenntur með öllu saman


Rosa fyndnir bræður!

Þessi alltaf með skemmtiatriðin á færibandi :o)

Í dag skruppum við mæðgin aðeins út í góða veðrið og tók Ástþór Örn hjólabrettið með sér
Góða helgi, hafið það öll sem best!
![]()
![]()
![]()