Nokkrar fleiri sveitamyndir
Hér eru nokkrar fleiri myndir úr sveitinni!

Arnaldur Kári nokkuð fótviss í mölinni. Ágætt að æfa sig svolítið að ganga
á ósléttu!


Eva kom alltaf og heilsaði aðeins upp á Ástþór Örn þegar hann hleypti þeim út

Arnaldur Kári lét sér nægja að fylgjast með því öllu af hliðarlínunni

Arnaldur Kári lét ekki eina einustu fjárhúsaferð fram hjá sér fara og
var farinn að fylgjast vel með öllum mannaferðum svo enginn kæmist nú út án
hans!

Arnaldur Kári hinn brattasti heilsar upp á hrútana

Sigurður Ágúst átti afmæli 14. apríl og átti góðan dag í sveitinni

Við vorum með nýbakað brauð og alls kyns góðgæti í hádeginu handa afmælisbarninu og
Ástþór Örn bjó svo til súkkulaðiköku (með örlítilli aðstoð!) með kaffinu!

Fín feðgamynd

Arnaldur Kári að kitla Ástþór Örn



Kominn heim úr páskafríinu beint út í garð að róla og leika!