Alls konar marsmyndir
Gengur nú varla að láta mars líða með einni færslu! Hér koma því nokkrar marsmyndir af þeim bræðrum! Allt gott að frétta af okkur.
Allir farnir að hlakka til páskafrís og rólegheita...Ástþór Örn hlakkar þó mest til að fá páskaegg!!

Mars er búinn að vera hálf vetrarlegur, með smá vorskotum inn á milli þó! Við vonum að vorið fari að láta
sjá sig í apríl.

Arnaldur Kári hlær og leikur sér!

Hesturinn er jafn vinsæll hjá Arnaldi Kári og hann var hjá stóra bróður

Í mars áttu nokkrir vinir og vinkona á leikskólanum afmæli og félagslífið
hjá þessum strák því í miklum blóma! Hér er hann prúðbúinn á leið í
afmæli til Maríönnu vinkonu sinnar.

Þó að vorið hafi nú látið á sér standa og enn svolítið í páskana höfum við
tekið fram páskaskrautið og líka föndrað. Hér er Ástþór Örn að búa til einn
af nokkrum dúskum sem síðar urðu...

að þessum fínu páskaungum í óróa

Páksalaukarnir hjálpa til við að koma okkur í vor- og páskaskap

Þessi stubbur tekur kannski þátt í föndrinu á næsta ári!

Við Ástþór Örn erum búin að vera dugleg að setja niður kryddjurtafræ og einnig sáðum við fyrir tómötum,. paprikum og pipar. Ástþór Örn
setti svo niður sólblómafræ og ætlar einnig að koma upp morgunfrúm.

Arnaldi Kára finnst rosalega gaman áð leika við Ástþór Örn og heldur þá líka að hann sé
miklu stærri en eins árs!

Hann er annars orðinn alveg stórhættulegur klifurköttur og kemur sér
á alveg ótrúlegustu staði ef hann fær frið til þess!


Ástþór Örn með fingrabrúður í páskabúningi sem ég bjó til í vikunni,
páskaungi og kanina með rauða slaufu.

Ástþór Örn að tefla við Sigurð, Arnaldi Kára þótti heldur fúlt að mega ekki stjórna leiknum

Arnaldur Kári að reyna að koma sér í inniskó, en eitthvað létu fæturnir illa af stjórn og rötuðu ekki ofan í skóna!

Það var því bara spjallað aðeins í símann í staðinn :o)

Við mæðgin tókum nokkur spil í dag en Ástþór Örn ákvað í morgun að hann ætlaði að hafa þennan laugardag svo
kallaðan letidag. Þannig að hann hefur skottast hér á náttfötunum og haft það gott! Í kvöld er svo stefnt að
því að eiga kósíkvöld með heimagerðum pizzum og fleiru! Hafið það öll sem best, við reynum að birtast aftur
ekki allt of seint í apríl! :o)