Sveitahelgi í byrjun mars

 

 

Drifum okkur í sveitina um helgina. Erum búin að hafa það fínt, ætluðum heim í dag en ákváðum að bíða til  morguns vegna veðurs. Höfum nú ekki mikið getað verið úti, en komumst þó aðeins á snjósleðann í gærmorgun

og höfum svo verið hér inni í rólegheitum. Hér koma nokkrar myndir!

 

 

 

Í gærmorgun var nú heilmikill strekkingur en við létum okkur hafa það að kíkja aðeins út

 

 

 

 

 

 

Arnaldur Kári gat aðeins sest á snjótþotuna

 

 

 

Ræstum snjósleðann...þó að ekki væri nú mikill snjórinn

 

 

 

 

 

 

Arnaldur Kári týndur!

 

 

og Píla leikur að sjálfsögðu með!

 

 

Aaaaaa við Pílu!

 

 

Við vitum ekki hvaða ævintýrum hún hefur nú verið í síðustu daga en hún hefur alla vega verið mest í að hvíla sig um helgina!!!

Þess má geta að hún verður níu ára á þriðjudaginn :o)

 

 

 

 

Ástþór Örn að fræða Arnald Kára um egypska guði til forna!

 

 

Risaeðlurnar vöktu mikinn áhuga

 

 

Það gekk aftur á móti eitthvað erfiðlega að kenna Pílu, sem vildi miklu frekar fá smá klór

 

 

 

 

Í morgun fórum við og gáfum kindunum já og hrútunum!

 

 

Píla að heilsa upp á nokkra hrúta

 

 

 

Ástþór Örn tekur sig vel út í fjárhúsunum, sem er eins gott því hann ætlar sér jú að verða bóndi þegar hann verður stór

 

 

 

Hífandi rokið myndast sem betur fer oftast illa

 

  

 

 

 

Kátur sveitastrákur!

 

 

  

 

Arnaldur Kári var nú bara inni í rólegheitum með Sigurði á meðan við Ástþór Örn fórum í fjárhúsin. Hann og Píla eru voða góðir vinir og hún passar

 vel upp á þann stutta. Arnaldur Kári "voffar" orðið og "mear" auk þess sem allt er voða mikið að "dettaaa"!!

 

 

 

 

 

Þarna á einhvers staðar að sjást í flaggstöngina! Veðrið versnaði og versnaði í dag og ákváðum við því að fara bara heim

á morgun, enda ekkert vit í að fara þegar orðið var blint og varað við stormi.

 

 

 

Við bökuðum því vöfflur og höfðum það notalegt. Hrefna og Gísli litu svo inn þannig að þetta var hinn besti sunnudagur í sveitinni!

 

 

 

 

Þeir bræður voru náttúrlega alsælir með að fá svolítið lengri tíma í sveitinni :o)