Í lok febrúar
Þá er febrúar á lokasprettinum og mars á næsta leyti...aldrei að vita nema að við fáum að fá örlítinn vorilm í loftið. Nú þegar 6 ára afmælið er búið erum við farin að hlakka til að mars gangi í garð og svo apríl með næstu afmælum í fjölskyldunni! Allt ágætt af okkur að frétta fyrir utan það að við höfum öll nema Ástþór Örn verið svolítið kvefuð undan farna daga. Nokkrar myndir, gjörið svo vel!

Arnaldur Kári alltaf á rúntinum!

Nú eða á röltinu með bílinn!

Við Ástþór Örn skemmtum okkur stórvel um daginn þegar við vígðum afmælisgjöfina frá Maríu og Huga í Svíþjóð. Sandur sem þjappast svo
saman að hann verður eins og leir og með eru alls kyns mót. Við útbjuggum hér krakka, krókódíla, pálmatré, hús og svo frv. í ýmsum litum!

Á sunnudaginn ætluðum við mæðgin í bíó en ákváðum nú að fresta því þar sem
veðrið var svo gott. Við fórum því út að labba og hjóla í staðinn.




Þegar við komum heim biðu okkar nýbakaðar pönnukökur.



Bræður í stíl!

Ástþór Örn á leið í afmæli til Díönu vinkonu sinnar.
Það er aldrei annað til umræðu en að fara í sparifötin, setja á sig slaufu eða bindi
og ilmvatn!!

Ástþór Örn var fyrir löngu búinn að ákveða að hann langaði að vera prúðbúin vampíra á
öskudaginn. Ég saumaði því skikkju handa honum og svona fór hann á leikskólann í gær!!

Og þegar við komum þangað voru þar prinsessur, svarthöfði, álfadísir, ljón og
fleiri kynjaverur! Á leiðskólanum var svo haldið furðufataball, sleginn köturinn úr tunnunni og
allir skemmtu sér konunglega skyldist mér :o)