Ástþór Örn 6 ára
Ástþór Örn varð hvorki meira né minna en 6 ára síðasta fimmtudag, 19. febrúar!Ástþór Örn þakkar kærlega fyrir allar kveðjurnar, þótti voða gaman hvað það mundu margir eftir deginum hans :o) Á miðvikudaginn hélt hann heilmikla veislu fyrir krakkana sem eru á Hjalla með honum á leikskólanum, sem heppnaðist mjög vel. Á fimmtudag átti hann svo góðan dag á leikskólanum og eftir leikskóla litu amma Kata, afi Ástþór, Hrabba, Valli, Þórdís, Úlfur inn og svo jú Diddi frændi líka.

Stuðið að byrja á miðvikudaginn. Hingað mættu 23 hressir og prúðir krakkar...já í þessa litlu holu okkar!

Borðhaldið að hefjast!

Afmælissöngurinn sunginn áður en afmælisbarnið blés á kökuna

Ástþór Örn tók ekki annað í mál en að hafa Barbapabbaköku, sem hefur nú
sést hér í afmæli áður!

Hann vakti mikla lukku og bragðaðist líka bara voða vel!

Ég skreytti nokkur muffins en átti nú von á því að þau yrðu nú svona á hliðarlínunni en svo reyndust þessar furðuverur hin mesta skemmtun og krakkarnir voru hér dágóðan tíma alveg niðursokkin
í upphafi borðhaldsins að velja sér sína köku, bítta og spá og spekúlera!

Ari, Elfa og Sara máttu lítið vera að því að horfa í myndavélina!

Björgvin gaf sér tíma til að líta upp!


Afmælisstrákurinn nývaknaður á afmælisdaginn sjálfan

Tók upp nokkra pakka og varð ægilega glaður þegar hann opnaði frá okkur foreldrunum og sá að upp úr pakkanum kom
einmitt það sem hann hafði óskað sér, flugubox með nokkrum flugum í!

Og litli bróðirinn hafði aldeilis hlustað vel á óskir Ástþórs Arnar því hann gaf honum Bionicle og Syrpu!

Arnaldur Kári var allt of lítill fyrir morgunkaffi á afmælismorgnum í fyrra...enda alltaf sofandi þá.
Núna tók hann þátt í öllu saman og er sjálfsagt farinn að hlakka til næsta afmælisdags í fjölskyldunni
með morgunnbakkelsi og notalegheitum!

Mér finnst nú svo stutt síðan við héldum upp á þriggja ára afmælið...

Og ekkert svo langt síðan Sigurður keyrði mig á spítalann 19. febrúar 2003 ef út í það er farið!!

Ánægður afmælisstrákur!

Kominn heim af leikskólanum á fimmtudaginn með flottu afmæliskórónuna.

Ástþór Örn er strax farinn að hlakka til að eiga sjö ára afmæli og finnst hann þurfa að
bíða allt of lengi eftir bílprófinu! Framtíðarplönin orðin nokkuð skýr þar sem hann
er harðákveðinn í því að verða bóndi í Dal og ætla giftast henni Díönu bestu vinkonu sinni
á leikskólanum!!
Hér koma svo nokkrar gamlar og góðar!

Maí 2003

Tvær frá í mars 2004


Janúar 2005

Október 2006

Júlí 2007