14. febrúar

 

 

Af okkur er allt fínt að frétta. Styttist í 6 ára afmælisdag Ástþórs Arnar, sem er orðinn ansi spenntur og telur niður dagana. Við foreldrarnir eigum aftur á móti bágt með að trúa því að hann sé orðinn svona stór!!

Litli kútur er líka kátur og hress. Fór í sína fyrstu klippingu á föstudaginn og lét sér fátt um það finnast :o)

 

Nokkrar myndir, njótið vel!

 

 

 

 

Arnaldur Kári skemmtir sér svakalega vel á þessum bíl en finnst best ef einhver nennir nú samt að ýta honum

hér um...helst á fleygiferð! Ástþór Örn er ansi góður stóri bróðir sem nennir að ýta honum hér fram og aftur

og passar vel upp á að taka þó ekki of snarpar beygjur og svo fram vegis!!

 

 

 

Og Ástþór Örn fær nú stundum aðeins að prófa bílinn fína

 

 

 

Shrek mættur á svæðið, Arnaldi Kára til mikillar ánægju

 

 

 

Arnaldur Kári var orðinn ansi hárprúður og kominn tími til að láta aðeins snyrta krullurnar

 

 

Æ, það var nú varla samt að ég týmdi að láta klippa hann...og Sigurði þótti ég alveg klikk!!
 

 

 

Og kominn heim ný klipptur og blásinn!

 

 

 

Svooo sætur nýklipptur

 

 

 

Í dag drifum við okkur út í smá göngutúr, mjög hressandi!

 

 

Það var fínasta veður en ansi rigningarlegt þó

 

 

 

 

 

Og uppáhaldstréð mitt í dalnum okkar!

 

 

 

Við röltum okkur svo í lundinn sem Ástþór Örn heimsækir oft með deildinni á leikskólanum. Hann var

ansi spenntur á leiðinni yfir því að það væri baðkar í lundinum. Við vissum ekki alveg hvað hann væri að meina en

þegar við komum þangað var þar baðkar (sem sést glytta í!) og aaansi langur kaðall. Vitum ekki alveg hvaða

flutningur hefur mistekist þarna en ég hefði nú viljað að þetta væri fjarlægt...þó að Ástþór Örn megi ekki heyra á það minnst

enda mikið stuð að ferðast með kaðalinn þarna um allt!

 

 

 

 

 

Ástþór Örn kominn inn í trjáhýsi

 

 

 

 

Á leið heim komum við við á Gubburóló, svo nefndum!

 

 

 

 

 

Ástþór Örn horfði spenntur á Ástþór Örn róla sér og skrækja!

 

 

 

 

 

 

 

Arnaldur Kári labbar hér um allt með bílinn en vill nú ekki taka skref óstuddur,

nema svona þegar hann gleymir sér alveg!

 

 

 

Gott að kúra aðeins!

 

 

Við óskum ykkur góðrar helgar og vonum að þið hafið það sem best