Bláa lónið, Gullfoss og Geysir
Vinir okkar frá Tyrklandi eru búnir að vera hér á landinu í nokkra daga. Erum búin að gera margt skemmtilegt með þeim enda ekki annað hægt þar sem veðrið hefur verið ótrúlegt!
Við Ástþór Örn drifum þau með okkur í Bláa lónið og svo fórum við fjölskyldan með ömmu og afa ásamt gestunum að Geysi og Gullfossi. Hér er svolítið af myndum.

Kader, Ástþór Örn og Sezgin mætt í Bláa lónið

Veðurguðirnir svo sannarlega verið í liði með gestunum og þau farin að halda að
við séum eitthvað skrítin að tala endalaust um rok og rigningu!!!!!!

Ástþór Örn mættur í Bláa lónið í fyrsta skiptið, en ég held að hann ætli að fá sér áskriftarkort eftir þessa ferð


Skemmtum okkur öll mjög vel og þau voru mest allan tímann svamlandi um með Ástþór Örn á bakinu,
sem leiddist það ekki mikið!



Það var ekki margt fólk þegar við komum og okkur leið því eiginlega eins og við værum ein í heiminum!

Um að gera að prófa aðeins myndavélina!

Hér stillt á stillingu þar sem blár litur er dreginn fram...viðeigandi einmitt þarna!



Veðrið var yndislegt þegar við fórum og skoðuðum Gullfoss og Geysi (ja reyndar Strokk!), en ansi kalt!


Komin að Geysi í 10 stiga frosti og vindstrekkingi. Ansi kalt, nema hjá Arnaldi Kára sem lét fara vel um
sig í vagninum.

Kader og Sezgin höfðu sem betur fer farið að ráðum okkar og komið með
hlý föt með sér!

Mikið var ég glöð að eiga úlpu þennan dag...þó mig langaði mest að vera bara í útigalla eins og Ástþór Örn :o)

Strokkur "in action"

Þegar við komum að Gullfossi fengum við svo að finna fyrir svolítið meiri kulda...brrrrrr

Þarna hafði mýsla verið á ferðinni, spurning hvort að hún hefur náð heim til sín
eða verið gripin af hrafni á leiðinni?

Gullfoss fallegur í vetrarskrúðanum...ég var reyndar um það bil að verða rænulaus af kulda þegar þarna var komið við sögu!
Amma Kata og Arnaldur Kári létu nú bara fara vel um sig í bílnum á meðan við hin kældum okkur niður.


Gott að vindur og kuldi sést ekkert á myndum!

Á leiðinni í bæinn komum við við í Hellisheiðarvirkjun, þar sem Sigurður er jú mörgum hnútum kunnugur!

Gestunum leist vel á þetta og Sigurði þótti ekki svo leiðinlegt að sýna okkur þetta allt saman!

Ég valdi þarna mynd af útsýninu frekar en fyrirsætunum


Komin aftur í Langagerðið eftir vel heppnaðan dag