2. febrúar

 

 

Vitum nú ekki hversu margir líta á síðuna þegar er uppfært svona sjaldan, en janúar flaug áfram og alltaf var ég á leiðinni að setja inn nýjar myndir. Þeir bræður eru hressir og kátir. Arnaldur Kári vill helst klifra allan daginn, sem sagt frekar hættulegur! Ástþór Örn búinn að bíða eftir að febrúar gangi í garð og telur dagana þar til hann á afmæli. Við foreldrar hans eigum ansi erfitt með að trúa því að þessi strákur sé að verða 6 ára. Ekki það að hann hefur stækkað svo og þroskast undan farið að það er kannski ekki skrítið. Er alltaf að verða öruggari að lesa og svo er hann nú orðinn nokkuð lunkinn í að reikna líka þannig að það er verið að leggja fyrir okkur talnaþrautir út í eitt!

Hér eru nokkrar myndir, flestar ef ekki allar teknar hér heima. Vonum að þið hafið það öll sem best.

 

 

 

Ástþór Örn að borða samloku...hans eigin uppskrift sem hann hefur nú skrifað niður í bók svona svo að

hún sé örugglega gerð rétt!

 

 

    

 

Þykir óskaplega gaman að setja upp alls kyns svipbrigði og fá teknar myndir :o)

 

 

 

Alltaf nóg að gera hjá þessum gaur!

 

 

Þetta finnst Arnaldi Kára skemmtilegast af öllu, fá að leika aðeins með stóra bróður.

Ástþór Örn hefur alveg ótrúrlega mikla þolinmæði gagnvart þessum litla fiktara.

 

 

 

  

 

Á meðan annar leiraði lék hinn sér alsæll við læknisdót

 

 

 

Í gær bökuðum við vöfflur í kaffinu og fékk Arnaldur Kári að gera örlitla bragðprufu áður en allt var borið á borð

 

 

 

Notalegt sunnudagskaffi

 

 

 

Arnaldur Kári eitthvað aðeinsmeð hugann við annað en myndatöku

 

 

 

Æ, þetta eru svo miklir snúllar!

 

 

 

Arnaldur Kári er alltaf til í smá kúr og knúserí, sem við í kringum hann

elskum alveg!

 

 

 

Þessi klifurköttur er orðinn frekar hættulegur því hann er snillingur í að koma sér í mikil vandræði!

Í dag var hann eitthvað að bauka með þennan stól, aðallega að ganga með hann hér eitthvað um.

Ég fylgdist með þessu hjá honum og það næsta sem ég vissi var að stólnum var stillt upp frekar nálægt borðstofuborðinu.

 

 

    

 

Honum þótti nú mesti óþarfi að ég væri eitthvað að fylgjast með þessu en ef ég hefði ekki gert það hefði hann jú sjálfsagt endað með gat á hausnum! En eftir að hafa fært stólinn alveg upp að borðstofustólnum

vippaði hann sér upp á kollinn

 

 

    

 

Og ætlaði sér nú því næst bara upp á borð og varð hinn fúlasti þegar ég braut upp leikinn!!

 

 

 

Þessi mynd var tekin 23. janúar 2008!

 

 

 

Og í dag ákváðum við að taka samanburðarmynd!