![]()
![]()
10. janúar
![]()
![]()
![]()
Komið helgarfrí og allt gott að frétta af okkur. Allt að færast í fastar skorður eftir jólafrí og svo hefur Arnaldur Kári fengið að vera í pössun hjá afa og ömmu í vikunni á meðan ég hef verið að vinna. Við höfum bæði sjálfsagt gott
af því að lengja aðeins í "taumnum"!
Hér eru nokkrar myndir, svona svolítið héðan og þaðan! Góða skemmtun :o)

Mér finnst bræðrasvipurinn sjást bara nokkuð vel á þessari mynd,
þó að okkur finnist þeir nú svona yfirleitt ekkert slándi líkir þessir sætu bræður!

7. janúar hélt amma Kata upp á afmælið sitt og þar náðist þessi fína mynd
af Ástþóri Erni með langömmu Svönu

Og þeir feðgar...Arnaldur Kári eitthvað að prófa skemmtilega myndagrettu!!!

Arnaldur Kári og langamma

Og tvær yndislegar, Steinunn og Amelía

Arnaldur Kári er sérlegur áhugamaður um tölvur...eða takka aðallega. Tölvur eru því í stórhættu nálægt honum.

Í dag fengum við góða gesti, afa Örn, Áslaugu og Klaus en þau heiðurshjón eru á leið heim til Þýskalands á morgun
eftir jólafrí hér. Margrét, stóra stelpan þeirra ætlar aftur á móti að vera hér á landinu í janúar og hlökkum við til að
fá hana í heimsókn í lok mánaðarins þegar hún staldrar aðeins við í borginni á leið til Þýskalands.

Ástþór Örn og afi Örn að skoða myndir af jólaþorpinu sem afi setur upp fyrir jólin og fleiri jólamyndir

Mér sem finnst svo stutt síðan ég tók mynd af Erni, Sigurði Ágúst og Ástþóri Erni í Birkeröd sumarið 2003!!!
Ástþór Örn og Sigurður með alveg sama myndabrosið :o)


Arnaldi Kára þykir voðalega gaman að hnoðast eitthvað í þessum stól sem Ástþór Örn er búinn að eiga í nokkur ár! Þegar hann fór að klifra upp í
hann fyrst valt hann iðulega niður úr honum eða féll aftur þegar hann lagðist á stólbakið...kostaði það þó nokkur tár. En núna lætur hann sér
ekki bregða svo mjög þó hann steypist nú fram og aftur.
Í dag fékk Ástþór Örn aðeins að prófa gítarinn hans Sigurðar


Vantaði ekki tilþrifin!


Þessi áhugasami áhorfandi dillaði sér við tónlistina!

Er hér mættur á rúntinn eftir tónleikana

Ástþór Örn dreif sig aftur á móti í spariföt bara svona sér til ánægju.
Hann tekur sig ansi vel út í þessum glæsilega smóking sem hann fékk
frá vinum sínum í Tyrklandi, sem við erum vonandi að fá í heimsókn í lok
mánaðarins! Ástþór Örn ætlar að sjálfsögðu að taka á móti þeim í
fínu fötunum :o)
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()