5. janúar
Árið hefur farið rólega af stað hjá okkur en nú fer allt að komast í rútínuna aftur. Það var starfsdagur á leikskólanum í dag þannig að Ástþór Örn var í fríi þar en aftur á móti var tími í myndlist og þótti honum mjög gaman að fara þangað aftur eftir jólafrí. Núna er að klárast haustnámskeiðið en hann ætlar að halda áfram á þessari önn, enda þykir honum námskeiðið mjög skemmtilegt og hefur líka lært heilmikið. Ástþór Örn stefnir svo á að fara á reiðnámskeið á önninni og er þessi litli knapi ekki lítið spenntur! Arnaldur Kári er hinn hressasti, farinn að ganga með og svona sigla aðeins á milli hluta. Í gær stóð hann í nokkrar sekúndur án nokkurs stuðnings! Þeir bræður eru góðir vinir þó að Ástþóri Erni þyki sá litli stundum heldur til spenntur fyrir heberginu hans og öllu dótinu þar.

Ástþóri Erni þykir voðalega gaman að halda á Arnaldi Kára, sem er
aftur á móti eins og köttur eða grís þegar hann reynir að koma sér
í burtu!!

Gaman að leika, enda bættist margt skemmtilegt við um jólin :o)

Í gær fengum við skemmtilega heimsókn, en þá litu Eva, Torfi og Ragnhildur Edda (sem er eins árs síðan
í september) til okkar. Ansi miklar dúllur saman þessir tveir krullukollar!!

Arnaldur Kári lagði sig svolítið seinna en venjulega og þegar hann svaf bara og svaf
ákváðu Sigurður og Ástþór Örn að bíða ekki lengur og drifu sig í eplaskífur og kaffi
til Birnu, systur afa Arnar. Þar var margt um manninn og þeir feðgar skemmtu sér vel
enda margt um manninn.

Þessi strákur vaknaði svo rosa hress og kátur enda vissi hann ekkert af boðinu sem hann missti af!


Arnaldur Kári á hestbaki - ég þarf að finna mynd af Ástþóri Erni á honum Stjarna!

Og kominn á rúntinn


Ástþór Örn aaaaaðeins að fá að líta í tölvuna!

Ástþór Örn búinn að byggja ansi fínt úr kaplo-kubbunum...það er svo á stefnuskránni að
taka svolítið til í þessu herbergi á næstu dögum!

Hress og kátur Arnaldur Kári :o)


Hafið það gott!