Áramót í sveitinni

 

 

Við óskum ykkur gleðilegs árs og vonum að árið 2009 fari vel af stað hjá öllum. Við vorum í sveitinni um áramótin og höfðum það notalegt. Hér eru nokkrar myndir!

 

 

 

Ástþór Örn á gamlársdag í góða veðrinu í sveitinni

 

 

  

 

 

 

Við kíktum svo í fjárhúsin og þar tók hún Fíóna okkur fagnandi, en hún er forystugimbur í eigu Ástþórs Arnar

 

 

 

Ástþór Örn að kasta áramótakveðju á þessar vinkonur sínar!

 

 

 

 

 

 

Fallegur gamlársdagur

 

 

 

 

 

Við amma Kata elduðum kalkún og alls kyns gott meðlæti en Ástþór Örn tók til í stofunni og skreytti¨hana!

Á meðan voru afi Ástþór og Sigurður á músaveiðum í kjallaranum...:o/

 

 

 

 

Hressir nafnar á síðasta kvöldi ársins 2008

 

 

 

Það er oft erfitt að ná mynd af þessum bræðrum saman því Arnaldur vill helst ekki

láta halda sér of lengi!

 

 

 

Á gamlárskvöld var enn blíða og við gátum því farið út með nokkur handblys og fleira sem olli ekki allt of miklum hávaða

 

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn náði í fyrsta skiptið á ævinni að vaka fram yfir miðnætti og fannst það

alveg ægilega merkilegt og gaman!

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn safnaði saman pappírskurlinu úr sprengiflöskunum og skreytti

meðal annars okkur fjölskyldumeðlimi

 

 

 

 

Ástþór Örn með Pílu og Lappa, sem er nágranni okkar og fékk að vera hjá okkur yfir áramótin í fóstri

 

 

 

Við drifum okkur og heilsuðum upp á hrossin. Frakkur varð glaður að sjá okkur eins og venjulega

 

 

 

 

 

Heilsuðum líka upp á merar og folöld/tryppi.

 

 

 

 

Við Sigurður fórum svo í nýársgöngu og fórum meðal annars niður að á

 

 

 

 

 

 

 

Gleðilegt ár!!!!!