7. desember - annar sunnudagur í aðventu
Þá er annar sunnudagur í aðventu að kvöldi kominn og við komin í jólaskap. Þessa helgi höfum við föndrað, bakað, skroppið á jólaball og litið í Húsdýragarðinn svo eitthvað sé nefnt! Kannski miklu skemmtilegra að
skoða bara myndirnar en að lesa lýsingarnar!!

Arnaldur Kári leikur snuddukúnstir! Hann er búinn að kveikja á því að okkur finnist þetta atriði hans ægilega fyndið
og leikur það því óspart!!!!

Arnaldur Kári að skoða Múmínbók

Á meðan Ástþór Örn skoðar Hringadrottinssögu í myndasöguformi. Hringadrottinssaga er nýjasta áhugamál Ástþórs Arnar
ásamt Star Wars!

Á föstudagskvöldið hrintum við Ástþór Örn loks í framkvæmd smá föndri sem við höfðum haft á planinu lengi.
Fyrsta jólagjöfin hans til okkar sem búin var til á leikskólanum var máluð krukka til að setja kerti í og við
öll jól síðan ætlað að útbúa fleiri. Núna hafði safnast svolítið af krukkum þannig að við drifum í þessu!



Við bjuggum líka til nokkrar jólakúlur!


Yndisleg kertaljós!

Nývaknaðir bræður á laugardagsmorgni

Við Ástþór Örn skelltum okkur svo á jólaball sem foreldrafélaið á leikskólanum hélt í Hjallaskóla


Þar var dansað í kringum jólatréð og svo skemmtu jólasveinarnir okkur vel!

Elfa Margrét og Ástþór Örn skemmtu sér konunglega eins og allir hinir krakkarnir!

Ástþór Örn prufukeyrði jólafötin sín og var ægilega sætur og fínn

Á laugardaginn fórum við svo í Langagerðið og skárum út og bökuðum veggi, þakplötur og fleira
en á morgun er ætlunin að koma Múmínhúsi saman


Á meðan við bökuðum hlustuðum við á jólalög og Arnaldur Kári reyndi að spila líka!

Í dag drifum við okkur svo í Húsdýragarðinn til að hitta hann Dýrmund úr jóladagatalinu

Byrjuðum á að kíkja aðeins í vísindatjaldið

Og heilsuðum upp á selina

Þessi falleg selur var í miklu fyrirsætustuði!

Fórum svo á skrifstofuna hans Dýrmundar, sem tekur starf sitt sem dýrahirðir í garðinum
mjög alvarlega!!!!!!!

Hann lék á alls oddi loks þegar hann vaknaði

Krakkarnir löbbuðu svo með honum í fjárhúsin

Þar var rúningarmeistari frá Hvanneyri að rýja

Krakkarnir gátu svo fylgst með þessum tveimur færu ullarkonur spinna

Nú svo kláruðum við hringinn í garðinum

Mælum með heimsókn í Húsdýragarðinn! Þar er ókeypis aðgangur inn til jóla :o)

Fengum okkur svo smá göngutúr í grasagarðinum

Þar tóku á móti okkar ansi margar svangar gæsir og endur...við lofuðum þeim nokkrum bitum á næstum dögum!



Þegar við komum heim kveikti Ástþór Örn á Betlehemkertinu

Arnaldur Kári fylgist með stóra bróður

Nú svo var reynt að taka nokkrar myndir af þessum bræðrum með það fyrir augum að ná jólakortamynd!!

Ég veit ekki...það er kannski um að gera að senda bara myndir af börnum alveg eins og þau vilja sjálf vera!!
Held til dæmis að það verði miklu skemmtilegra að sjá þessa mynd eftir einhver ár heldur en einhverja þar
sem báðir brosa prúðir!!! Eða kannski er ég að selja mér þá hugmynd þar sem ég náði engri slíkri mynd!!!!!!!!!!



Nú eftir myndatökuna hituðum við kakó og fengum okkur nokkrar smákökur

Arnaldur Kári er ansi spenntur fyrir þessum skáp og vill helst reyna að klifra alveg inn í hann.
Nú annars finnst honum stórskemmtilegt að raða bókum og geisladiskum. Svo dansar
hann um leið og hann heyrir tónlist og finnst notalegt að kúra og láta klóra sér á bakinu :o)
12 dagar í eins árs afmæli þessa snáða...að hugsa sér.