24. nóvember
Við drifum okkur í sveitina um helgina, en þangað höfðum við ekki farið síðan snemma í haust. Við höfðum það gott, þó að veðrið hefði kannski mátt vera betra. Hér eru nokkrar myndir, aðallega úr fjárhúsunum!

Við komum seinni partinn á föstudag og eftir kvöldmat skruppum við í fjárhúsin, enda ekki
komið í sveitina eftir að féð var sótt af fjalli.

Ástþór Örn heilsar upp á Baug og Blíðfinn


Hér eru svo tveir hrútar af yngri kynslóðinni, hafa fengið nöfnin Skúmur og Töggur.

Á laugardagsmorguninn var fallegasta veður og ansi notalegt að vera í friðsældinni í sveitinni

Arnaldur Kári að háma í sig hafrakex!

Er voðalega hrifinn af stóra bróður

Ástþór Örn í nærmynd!

Á laugardaginn skruppum við á bæ rétt hjá þar sem Dufgus hefur verið í frumtamningu og Frakkur í smá endurmenntun!
Þeir hafa báðir staðið sig vel í "skólanum"!

Tamningarkonan sýndi okkur nokkrar æfingar á Dufgusi

Ástþór Örn vildi helst taka Frakk með heim!

Mættur í fjárhúsin enn og aftur

Þarna eru þeir nafnar með forystukind sem Ástþór Örn fékk að eiga og fékk nanfið Fíóna!

Þessum leist ekkert meira en svo á þessa skráningarmenn. En okkar ásetningskindur fengu meðal annars nöfnin
Ísbjörg og Fura (höfum reynt að hafa þann háttinn á að nöfnin séu í seríum, þannig er Ísbjörg dóttir Ísabellu og
Fura dóttir Zedru, sem er dóttir Eikar).

Fallegur sunnudagsmorgun. Það fór svo að blása vel um hádegi og þá var nú gott að sitja inni í rólegheitum og læra fyrir próf!

Yndislega morgunsól

Ástþór Örn kann vel við sig í sveitaverkunum og langar ekkert meira en að eiga heima í sveit!
Við mæðgin látum okkur stundum dreyma um sveitalífið og erum sammála um að fyrsta dýrið sem við
myndum fá okkur væri kisa.



Snjótittlingar að leita að einhverju ætilegu. Ég kenndi svo í brjósti um þá að ég fór og gaf þeim svolítið að maula.
Þeir eru víst ansi harðgerir og þola hin verstu veður, þó að mér finnist þeir svo litlir og vorkenni þeim ægilega.


Arnaldi Kára leist bara vel á fjórfætlingana í fjárhúsunum

Enn ein mynd í Seljafellssafnið mitt!

Og ein í skýjamyndasafnið líka

Kátir bræður á heimleið!
