20. nóvember   

 

 

Orðið of langt síðan síða þeirra bræðra var uppfærð! Ég í smá skólatörn og um að gera að taka smá pásu og setja inn nokkrar myndir og fréttir.

Arnaldur Kári varð ellefu mánaða í gær og eigum við öll ansi bágt með að trúa því að það sé svona stutt í eins árs afmæli litla snáða.

Annars er bara allt gott að frétta af þeim bræðrum. Við Ástþór Örn erum farin að hlakka voðalega til að fara að undirbúa jólin aðeins og finnst voðalega gaman hvað er stutt í 1. des kakóboðið okkar.

Ég í prófum í næstu viku en eftir það ætlum við að fara að skreyta svolítið og baka.

Fyrir tæpri viku endurheimtu þeir bræður svo afa Ástþór og ömmu Kötu úr Tyrklandsdvöl og  Ástþór Örn vill því lítið vera hér heima þessa dagana!

 

 

 

Það hefur verið afmælishrina á leikskólanum og Ástþór Örn farið í nokkur afmæli í nóvember.

Það er mikið atriði að fara vel klæddur og hann vill vera í hvítri spariskyrtu með bindi.

Hann er afskaplega mikið fyrir það að vera með bindi og slaufur þessi herra!

Myndasvipurinn er nýr og var ég beðin að taka myndina svona á hlið!

 

 

 

Þessi stúfur er nú ekki enn þá farinn að þróa aðra myndasvipi en er nú farinn að sýna

hvað í sér býr ansi oftar! Þannig mótmælir hann ansi harkalega ef Ástþór Örn tekur af

honum dót sem hann er að leika sér með (þá yfirleitt eitthvað sem Ástþór Örn á!) og er

svona farinn að sýna svolítið af þrjóskunni sem er nokkuð einkennandi hvort tveggja í móður- og

föðurætt!!!!

 

 

 

Alltaf gaman þegar gítarinn er dreginn fram! Og við erum ekki að flytja...eigum bara eftir að rýma

fyrir þessum kössum í geymslunni okkar!

 

 

 

Lítill spaghettimunnur í baði! Það liggur við að maður þurfi að fara í pollaföt þegar Arnaldur Kári er baðaður

svo mikið er burslað.

 

 

 

 

 

Við skruppum í matarboð í Langagerði í vikunni þar sem við fengum himneskan indverskan mat.

 

 

Félagsskapurinn var líka góður því þar voru líka Tinna, Örn og Amelía

 

 

Arnaldur Kári fæddur 19. des 2007 og Amelía fædd 3. júlí 2008 höfðu um nóg að spjalla

 

 

Ástþór Örn var voða spenntur að hitta litlu frænku í fyrsta skiptið

 

 

 

Beðið eftir hádegismatnum í gær

 

 

 

Ástþór Örn skellti sér í klippingu í gær!

 

 

Ástþór Örn með nýja myndasvipinn. Það er einnig mjög töff að vera með

friðarmerkið á myndum núna!!!

 

 

 

 

Hr. Fingralangur að kanna nýjar slóðir

 

 

 

Og nývaknaður í morgun að bíða eftir að hafragrauturinn verði borinn á borð!

 

 

Og ég komst að því að myndavélin okkar getur tekið í svart/hvítu!