2. nóvember   

 

 

Jæja, það er aldeilis sem tíminn flýgur áfram. Síðasta vika leið hratt og margt skemmtilegt að gera. Ástþór Örn fékk vin sinn af leikskólanum í heimsókn, þeir Sigurður og Ástþór Örn fóru í sláturboð til Didda og fjölsyldu á meðan ég las fyrir frönskupróf og fleira. Í gær var það svo íþróttaskólinn hjá Ástþóri Erni en þá héldum við líka smá hrekkjavöku. Og í dag skruppum við, ég og Ástþór Örn í bíó og sáum Geimapana. Skemmtum okkur vel! Vonum að þið eigið góða viku fram undan - já og takk fyrir skemmtilegar kveðjur í Gestabók!

 

 

 

Arnaldur Kári fer hér á milljón um alla íbúð og eru gullfiskarnir nýjasta uppfinningin. Við verðum því að fara að flytja þá ef þeir eiga ekki að enda ævi sína

með skelfilegu taugaáfalli nú eða bara á gólfinu.

 

 

 

Svona einhvern veginn sjá þeir væntanlega þennna risa sem elskar þá svo mikið!

 

 

 

Fjör á háhesti!

 

 

 

 

Arnaldi Kára þykir voðalega gaman að skoða dótið í herbergi Ástþórs Arnar.

Ástþór Örn er svona mishrifinn af því að hafa hann hjá sér, þar sem honum finnst

jú skemmtilegast að skemma turna og naga LEGO kubbana sem dæmi.

Það þarf að fylgjast ansi vel með að engir smáhlutir séu þar sem þessir litli fingur ná til.

En oft leyfir Ástþór Örn honum nú að sitja og skoða bangsa, sem er hættulaust sport þegar maður er

bara tíu mánaða!

 

 

 

En yfirleitt er þetta raunin samt, Ástþór Örn afþakkar gesti!

 

 

 

Þið afskakið slök myndgæði en myndin lýsir þó vel stemmningunni þegar

þessi litli kútur situr og bankar vongóður um að verða hleypt inn

 

 

 

 

 

Arnaldur Kári alveg týndur...

 

 

 

 

...og "geh" sem útleggst "gúgg" fundinn!!

 

 

 

Ástþór Örn mættur í íþróttaskólann í gær og hér er myndasyrpa af duglegum strák!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þegar heim var komið fór Ástþór Örn í að teikna upp tillögur af graskersútskurði

 

 

  

 

Ástþór Örn leikstýrði þessum myndaþætti okkar mæðgina!

 

 

Og búið að opna

 

 

 

Og graskerið tæmt

 

 

Svo var svipurinn ákveðinn og byrjað að skera

 

 

 

Arnaldur Kári horfði spenntur á og vissi nú ekkert hvaða guli hnöttur þetta var sem átti hug okkar allan!

 

 

 

Finnst ykkur graskerið okkar ekki flott!?!

 

 

 

Huggulegt hreggjavökuboð

 

 

 

 

 

Í fyrra vorum við með heila- og vampýrumuffins en í ár var þemað

furðulegt fólk og fyrirbæri!

 

 

 

Til dæmis skeggjaða konan

 

 

Og ansi ógnvænlegur kýklópi :o)

 

 

 

 

Við máttum ekkertr vera að því að brosa framan í myndavélina því muffinsin voru svo góð!

 

 

 

Sigurður var mjög metnaðarfullur í búningavali í ár!!!

 

 

  

 

Og graskerið tók sig vel út í síðdegisrökkrinu

 

 

 

 

 

Hrekkjavökudagskránni lauk svo með brúðuleikhúsi Ástþórs Arnar, þar sem sagt var frá bræðrunum þremur, Gunnari, Óla og

Jóhannesi. Jóhannes kom þó mjög lítið við sögu þar sem hendur leikstjórans eru jú bara tvær og Gunnar og Óli greinilega

frekari en bróðir þeirra.

 

 

 

Mjög skemmtilegt og spennandi leikrit!

 

 

 

 

 

Arnaldur Kári skemmti sér stórvel

 

 

 

Og brúðuleikhússtjórinn sjálfur var ánægður með sýninguna!

 

 

 

Ég náði þessari mynd eftir bað í gær og má til með að setja hana hér inn því hér sést vel í tvær tennurnar í

neðri góm og aðeins glytta í þær tvær í efri góm!

 

 

 

Þessi indjánahöfðingi birtist svo hér í gærkvöldi. Ástþóri Erni þykir þetta

þó ansi bitlaus indjáni þar sem hann á ekki boga

 

 

 

Kári á leið í háttinn, aðeins verið að bíða eftir að hárið þorni eftir baðið

 

 

 

 

 

Þeir bræður aðeins að knúsast í morgun

 

 

 

Æ þetta eru meiru dúllurnar þessir sætur bræður!

 

 

 

Hér er svo í lokin frétt og mynd sem birtist í Kópavogspóstinum í vikunni!