18. október
Ástþór Örn allur að braggast, eftir nokkuð misjafna daga eftir kirtlatökuna. Þökkum allar kveðjurnar, okkur þykir voða vænt um að þið hafið hugsað til þessa duglega herramanns!
Drifum okkur aðeins út í fallega haustveðrið í dag og hér koma nokkrar myndir. Vonum að þið eigið góða helgi öll!

Lagt af stað!

Sums staðar má enn ná fallegum haustlitum

Langt síðan við höfum farið og gengið í dalnum hér fyrir neðan húsið okkar,
enda veðrið í haust ekkert verið allt of skemmtilegt.

Ástþór Örn tók ekki annað í mál en að fá að keyra vagninn. Mér varð hugsað til þess þegar
við Sigurður kepptumst um að fá að keyra Ástþór Örn í vagninum forðum!!


Síðustu forvöð fyrir fuglana að ná sér í nokkur reyniber!

Fallegir bræður í haustlitum og sólskini

Og við mæðin stillum okkur upp undir reynitrjánum

Fallegir hausttónar

Ástþór Örn lét sig dreyma um arineld þegar hann fann þennan trjádrumb

Kátur Káralingur!

Ástþór Örn sýndi okkur nýjan stað í dalnum þar sem krakkarnir á leikskólanum heimsækja oft.
Næst stefnum við á að taka með okkur heitt kakó og nesti.
