14. október

 

 

 

 

Í morgun fór Ástþór Örn í háls- og nefkirtlatökuna. Það gekk allt vel en hann er nú svolítið slappur elsku karlinn, en verður vonandi fljótur að jafna sig.

Arnaldur Kári var hér heima með Hröbbu frænku á meðan. Næstu daga verður Ástþór Örn því heima að jafna sig. Ágætt að við erum búin að byrgja okkur nokkuð vel upp af Syrpum, skemmtilegum myndum að horfa á og að sjálfsögðu frostpinnum!

 

Hér eru nokkrar myndir af þessum sætu bræðrum!

 

 

 

Fallegt útsýnið frá nýrri vinnuaðstöðu húsmóðurinnar/nemans!

 

 

 

Ástþór Örn og Arnaldur Kári skemmta sér í baði.

 

 

 

Ástþóri Erni þótti nú Arnaldur Kári busla heldur mikið fyrir sinn smekk!

 

 

 

Kúrt saman eftir baðið

 

 

 

 

 

 

Arnaldi Kára þykir alveg ægilega gaman þegar stóri bróðir sest og leikur svolítið við hann í hans "herbergi".

Enn skemmtilegra er þó að fara í herbergi stóra bróður, en það er nú mis vinsælt hjá Ástþóri Erni!

 

 

 

Lítill ferðalangur

 

   

 

 

 

 

Hetja dagsins á þessu heimili. Dreif sig í að kubba saman LEGO brunabíl sem kom upp úr pakka sem

afi Ástþór og amma Kata höfðu skilið eftir. Sló alveg í gegn!

 

 

 

 

Bestu kveðjur til ykkar allra! Hafið það sem allra best.