21. ágúst

 

 

 

Þá erum við mæðgin komin aftur í sveitina og ætlum að vera í einhverja daga. Eitthvað erfitt að koma sér inn í haustrútínu!! Notalegt að ná smá síðsumri hér með berjatínslu og rólegheitum.

Við þökkum kveðjurnar í Gestabókina, alltaf gaman að fá þær. Vonum að þið hafið það öll sem best :o) Og ef við uppfærum ekki á morgun 22. ágúst viljum við senda henni Láru Dís frænku okkar

í Þýskalandi okkar bestu afmæliskveðjur.

 

 

 

Tunglskin á fallegu kvöldi í Dal

 

 

 

Lesið áður en Ástþór Örn fór í háttinn

 

 

 

Og Arnaldur Kári nývaknaður kúrir hjá ömmu Kötu

 

 

   

 

Arnaldur Kári 6. febrúar í þessari fínu peysu sem ég prjónaði

 

 

 

Og peysan reyndist svo vel að ég sá mig tilneydda til að prjóna aðra stærri!

 

 

 

Við skruppum svo aðeins með ömmu í berjamó

 

 

Nóg af berjunum þetta árið

 

 

 

Fátt notalegra en að kúra vel dúðaður í vagninum!

 

 

 

 

 

 

 

Trýna farin af stað í smá leiðangur!

 

 

 

 

Í gær var mikill hestadagur hjá þeim nöfnum. Ástþór Örn byrjaði á að fara á Frakk

 

  

 

Tekur sig ansi vel út!

 

 

 

 

Ástþór Örn var ægilega ánægður með að ná nokkrum dögum í sveitinni í viðbót.

 

 

 

 

 

Á leið í reiðtúr með afa Ástþóri

 

 

 

 

 

 

Klárir í slaginn

 

 

 

 

 

 

 

 

Í reiðtúrnum var komist að því að Frakkur hafði tapað skeifu og Ástþór Örn skipti því yfir á Krumma