13. ágúst

 

 

 

Hér koma fleiri myndir úr sveitinni, þar sem við erum nú bara enn. Nú fer fríinu að ljúka hjá Sigurði og haustrútínan hjá okkur hinum að verða raunverulegri! Við erum búin að hafa það gott í sveitinni og vonandi að haustið verði gott,

með ekki allt of mörgum haustlægðum. Hafið það sem best.

 

 

 

Þessa mynd tók Ástþór Örn út um gluggann um daginn. Regnboginn var vel skrásettur enda tók hann fullt af myndum

og myndböndum frá nokkrum sjónarhornum

 

 

Arnaldur Kári fær aðeins að setjast á bak

 

 

 

Og hér er litli veiðimaðurinn nánast í fullum skrúða. Það hefur verið óborganlega fyndið að heyra hann

spjalla við veiðimenn í sumar en hann spyr þá spjörunum úr, hvar hafi veiðst og bendir á góða staði!!

 

 

 

Ástþóri Erni hefur gengið vel að æfa sig á hestbaki í sumar og er hann farinn að hlakka til að reyna að komast á námskeið í vetur

 

 

 

Litli kátilíus með sætu lærin sín

 

 

Við skruppum í lautarferð um daginn og tíndum svolítið af berjum í leiðinni

 

 

 

 

 

Fundum okkur sólskinspoll þar sem við borðuðum nestið okkar og slöppuðum af

 

 

    

  

 

Ástþór Örn hinn hressasti í skóginum

 

 

 

Arnaldur Kári virtist líka vel þarna í rjóðrinu

 

 

 

Ástþór Örn slakar á í sólinni. Orðinn ansi hárprúður eftir sumarið en á pantaðan tíma í klippingu!

 

 

 

Mmmm....

 

 

Vinsæll eftirréttur þessa dagana, bláber, rjómi og smá sykur

 

 

 

Í dag var komið svolítið haust í loftið fannst okkur og ástæða til að klæða sig

svolítið betur en undan farna daga

 

 

 

Dufgus er voðalega afslappaður og var ekkert að kippa sér upp við það þegar þeir lögðust hjá honum nafnarnir

 

 

 

Spenntir að horfa á Tinna

 

 

 

Í dag bakaði ég vöfflur og bauð upp á þrjár tegundir af sultum með!

 

 

 

 

 

 

 

Eftir að hafa borðað á okkur gat drifum við Ástþór Örn okkur aðeins úr í göngutúr með

Arnald Kára í vagninum. Byrjuðum á að fara og heilsa upp á félagana, Neista, Merkan og Dropa

 

 

 

 

 

Píla og Trýna skottuðust með okkur

 

 

Heilmikið af fífum hér í ár...einhver sagði mér að slíkt gæti boðað mikinn snjó á komandi vetri - við sjáum til!