9. ágúst
Við enn og aftur í sveitinni. Búin að hafa það fínt, renna fyrir laxi, fara á hestbak, hjálpa svolítið til í veiðihúsinu og alls konar. Nú fer að síga á seinni hluta sumarfrís og alvara lífsins að taka við!
En fyrst ætlum við nú að hafa það eins gott og við getum og á dagskránni er að skreppa í berjamó, lautarferð og fjöruferð...svona ef veður leyfir.

Ástþór Örn í sólskinsbænum Stykkishólmi!

Á meðan Sigurður var úti í á létum við fara vel um okkur og reyndum aðeins að hjálpa til í veiðihúsinu.
Arnaldur Kári skemmti sér hér konunglega í rólunni sinni!

Í fyrradag skruppum við með afa í Másstaðabyrgi til að líta eftir sveppum

Ástþór Örn kveikti á "svepparadaraugunum" eins og hann sagði sjálfur og var nokkuð naskur
að koma auga á sveppina!

Fundum svolítið af fursveppum, sem okkur þykja voðalega góðir en líka
nokkra ægilega stóru kúalubba. Ástþóri Erni þótti við nú heldur skrítin að
vilja ekki hirða þá líka, en trénaðir og úr sér vaxnir eru þeir nú ekki bragðgóðir.
Þegar við komum heim í Dal elduðum við þetta líka fína villisveppapasta.

Fundum svolítið af hrútaberjum

Og heilan helling af bláberjum sem voru mörg orðin alveg tilbúin

Nafnarnir skemmtu sér vel í skógarferðinni

Arnaldur Kári hress og kátur að bíða eftir kvöldmatnum sínum

Þessir tveir hlæja mikið saman og skemmta sér!


Í gær skruppum við í smá bíltúr og komum auga á einar 6 svanafjölskyldur á leiðinni

Feðgar á Búðum

Ástþór Örn var fullviss um það að Arnaldur Kári myndi skemmta sér mun betur í göngutúrnum ef stóri bróðir æki vagninum!


Við mæðgin fyrir utan Búðakirkjuna fallegu

Arnaldur Kári var ekki alveg að ná þessu hópknúsi og skildi eiginlega ekkert í þessu...
hvort við værum að reyna að komast oftan í vagninn eða hvað!?!?

Sigurður og Ástþór Örn fóru í kapphlaup niður í fjöru

Og tveir litlir punktar þarna lengst í burtu á leið upp úr fjörunni aftur

Mér þykir alltaf svo fallegt að horfa austurátt þegar ég er á þessum slóðum


Arnaldur Kári skemmti sér konunglega í gönguferðinni


Ástþór Örn skemmti sér líka vel og rifjaði upp þegar hann kom á Búðir fyrir tveimur árum

Við biðjum ykkur öll vel að lifa og sendum bestu kveðjur úr sveitinni.