2. ágúst

 

 

 

Ágúst genginn í garð, voðalega sem júní og júlí liðu hratt! Við í borginni í nokkra daga en stefnum á það að skreppa í sveitina fljótt aftur þar sem Sigurður Ágúst er að fara að veiða og ég ætla að sitja fyrir berjunum! Ætli þau verði nokkuð klár alveg strax samt.

Erum nú bara búin að taka því rólega heima við að mestu, skruppum aðeins í göngutúr í gær um Laugardalinn í hitabylgjunni!

 

En hér eru sveita og bæjarmyndir, gjörið svo vel :o)

 

 

Leyndardómsfullur Snæfellsjökull! Tók þessa mynd þegar við pabbi skruppum á bæ ekki svo langt frá okkur til þess að sækja hann Merkan okkar,

eins vetra fola sem hafði fengið að vera þar í haganum á nokkurs konar leikskóla síðustu mánuði.

 

 

Hér er hann í haganum. Ægilega fallegur finnst mér og gaman að vera búin að fá hann

aftur í heimahaga í Dal

 

 

Verður gaman að fylgjast með honum dafna þessum strák mínum!

 

 

Hestastóð

 

 

Þetta kvöld var milt veður, sérstakt að upplifa hlý sumarkvöld á Íslandi

 

 

 

Það var sól og blíða í Dal í vikunni, sem og annars staðar á landinu. Hitinn fór langt yfir 20° C og hér eru þeir nafnar

á leið í ferð að athuga stöðuna á nýjum græðlingum í þurrkinum og sólinni

 

 

Ástþór Örn var nú ekkert á því að fara í léttari föt og úr gúmmístígvélunum í fyrstu

en var nú orðið ansi heitt og gott að svala aðeins þorstanum!

 

 

Plönturnar sjálfsagt verið afskaplega fegnar að fá smá sopa

 

 

 

Aðeins sumarlegri hér...en enn í gúmmístígvélunum þó! Skjólbeltaræktin í Dal gengur vel eins og sjá má, hægt að týnast í rjóðri

 

 

 

 

Fallegar skýjamyndir í sumarblíðunni

 

 

Afi er aðeins farinn að æfa Dufgus í taum. Dufgus er fjögurra vetra bleikálóttur hestur sem vonandi verður einn daginn skemmtilegur reiðhestur

í eigu Arnaldar Kára!

 

 

 

Afi á Létti, Hrafn í hvarfi í miðjunni og svo Dufgus, sem virðist afskaplega kurteis og skemmtilegur hestur

 

 

 

 

Þeir feðgar spila krokket

 

 

Inni í smá sólarpásu! Afi og Arnaldur Kári klappa

 

 

 

Ástþór Örn einbeittur að skrifa. Þessi strákur er ansi mikill föndrari og sífellt að búa

eitthvað skemmtilegt til. Hann situr stundum og hannar bíla og hús til dæmis!

 

 

 

Afi með litla kút, sem er eiginlega alltaf brosandi

 

 

 

Tásumynd!

 

 

 

Svooo fyndinn strákur

 

 

 

Algjör dúlli gerir æfingar

 

 

 

Skroppið í kerið í kvöldsólinni

 

 

 

Ástþór Örn með fyrstu bæjarber sumarsins. Tíndi svolítið af rifsberjum og sólberjum

sem við gæddum okkur á í salati með matnum.

 

 

 

Ástþór Örn kominn í verslunarhelgarmannagír á föstudagsmorgni!!

 

 

 

 

 

Í gær skruppum við í Laugardalinn

 

 

Fallegar bóndarósir. Ég lét mig dreyma um eigin garð með svona fallegum blómum...

 

 

 

 

 

 

Ég myndi líka vera með svona túrbanliljur í mínum garði!

 

 

 

 

 

 

 

Fallegar og ilmandi rósir sem glöddu okkur rósaunnendur

 

 

 

 

 

Arnaldur kári svaf í vagninum og var því afsakaður á þessari fjölskyldumynd

 

 

Eitt af uppáhaldsblómunum mínum og Ástþórs Arnar, hjartablóm

 

 

  

 

Ástþór Örn æfði sig aðeins á hjólabrettinu

 

 

Ástþór Örn eitthvað upptekinn við að horfa á barnaefnið og má lítið vera að því að horfa í

myndavélina

 

 

 

Í dag höfum við svo tekið því rólega og Ástþór Örn búinn að dunda sér í herberginu sínu

enda langt síðan hann hefur verið inni að leika eftir útistörfin í sveitinni

 

 

  

 

Og frammi sat litli bróðir og lék sér og hjalaði. Hann verður kominn í útiverkin í sveitinni áður en við er litið!

 

 

Vonum að þið eigið öll góða helgi!