26. júní 

 

 

Síðustu dagar hafa verið ljúfir eins og sumardagar eiga að vera! Við mæðgin höfum haft hugann allan við sumarfríið á meðan Sigurður hefur átt langa daga í vinnunni. Við reynum að eiga þeim mun fleiri skemmtisögur af okkur að segja honum þegar hann kemur úr vinnunni! Arnaldur Kári stækkar og þroskast hratt, kominn með krúttaralega spékoppa við olnbogana og mýkstu læri sem um getur! Þykir ekki orðið nóg að fá hrós fyrir það hvað hann reisir sig þegar hann er á maganum heldur vill ólmur komast af stað. Fer í sex mánaða skoðun næsta mánudag og á sjálfsagt eftir að brosa hringinn þar eins og hér heima alla daga. Ástþór Örn leikur á alls oddi, svona fyrir utan örlitlar orystur sem háðar eru í sjálfstæðisbaráttu stöku sinnum eins og má teljast eðlilegt hjá fimm ára strák! Óteljandi gullkorn hafa líka fallið og skemmtiatriðin fyrir okkur Arnald Kára óteljandi.

 

  

 

Ástþór Örn hefur mikinn áhuga á tyrkneskum soldánum og í fyrra vildi hann ólmur kaupa sér svona

búning eins og hann sá nokkra stráka íklædda spássera um Istanbul. Ég tók mig því til og fór

í eina af skrilljón búðum sem seldu búninga af þessu tagi. Hér köllum við þessa múnderingu bara

soldánafötin en í Tyrklandi eru þau tengd allt öðru máli! Búningurinn er stöku sinnum dreginn fram og

vill þá Ástþór Örn ráða öllu þar sem hann sé jú soldáni...

 

 

 

Ástþór Örn heldur enn góðum dampi í endurvinnslunni og varð til að mynda alveg

himinsæll þegar honum áskotnaðist poki fullur af plastflöskum í sveitinni um daginn!

Lita/þrautabókin sem hann fékk í Sorpuferð leikskólans er því oft dregin fram.

 

 

 

Við skruppum í Húsdýragarðinn í dag. Þar var verið að endurbyggja fjós og fleira og auk

þess sem garðurinn var fullur af hressum krökkum af hinum ýmsu leikjanámskeiðum.

Við náðum þó að komast á undan þeim í vísindatjaldið og Ástþór Örn gat

varið dágóðum tíma í að búa til sápukúlustrokk eins og þennan

 

 

 

 

 

Gaman að kíkja í Húsdýragarðinn en við mælum nú bara með heimsókn í okkar sveit frekar á meðan framkvæmdir

standa yfir þar og atið er mikið!

 

 

 

Eftir rölt í Húsdýragarðinum röltum við um Grasagarðinn. Þar gerist margt á dögum sem þessum

og heilmikið búið að gerast síðan við vorum þar á 17. júní

 

 

 

Stolt andamamma

 

 

 

Ástþór Örn og sólblómin

 

 

 

Ástþór Örn hefur erft eitthvað af mikilli blóma- og gróðurþrjáhyggju minni

og vildi fá mynd af sér undir þessari fallegu sírenu

 

 

 

Þegar við komum heim fengum við okkur síðbúinn hádegsverð á svölunum.

Sátum svo þar og höfðum það gott, lásum, lituðum og fleira!

 

 

 

Ánægður með dótið sitt undir sólhlífinni

 

 

 

 

 

Við Ástþór Örn erum spennt að sjá hvort að þessi tvö jarðarber nái fullum þroska...eigum ekki von á frekari uppskeru svo sem!!