15. júní 

 

 

Þá erum við komin úr sveitinni, vorum þar nokkrum dögum lengur en við ætluðum og höfðum það voða gott. Nú eru nokkrir bæjarsumarfrísdagar fram undan hjá mér, Ástþóri Erni og Arnaldi Kára en mikil vinna hjá Sigurði.

Vonandi förum við nú samt að leggja drög að sumarfríi öll saman. Við ætlum nú ekki að fara neitt út fyrir landsteinana þó og vonumst því eftir góðu sumarveðri í sumar!

Hér eru svo nokkrar myndir...eiginlega endurtekið efni - en er góð vísa nokkurn tímann of oft kveðin!?!

 

 

 

Ástþór Örn hefur verið að undirbúa flöskuskeyti, sem á að vera á íslensku og ensku! Hann er nú ekki farinn að skrifa hjálparlaust

en þekkir orðið stafina og er því nokkuð góður að bjarga sér ef honum er svolítið leiðbeint (ég á víst þarna eitt G). Hann hefur nú sett sér það markmið að

læra að lesa í sumar en ég á þó eftir að sjá hann nenna að sitja yfir bókinni í sumarblíðunni!!

 

 

 

 

 

Þessum herramanni er nú farið að leiðast það að liggja glaðvakandi í vagninum! Enda miklu skemmtilegra að sjá vel út og fylgjast með.

 

 

 

Verður það nokkuð sumarlegra? Blár himinn og sóleyjahaf! Ástþór Örn í miklum sumargír í sveitinni

 

 

 

Um daginn var ég farinn að vorkenna svo andarstegg sem var alltaf einn á ferðinni við Dal á kvöldin.

Núna er ég búin að taka gleði mína fyrir hönd steggjarins því við komumst að því að hann var bara að

sitja vörð um hreiður sitt og konu sinnar með níu eggjum í. Vonum að þau komi sem flestum á legg.

Það má sjá þarna glytta í eitt af eggjunum í hreiðrinu undir grenitrénu.

 

 

 

  

 

Ástþór Örn er orðinn mjög öruggur á baki og duglegur. Hér tölturm við saman hann á Frakk og ég á Létti

 

 

 

 

 

Svooo gaman

 

 

 

Við Léttir nýkomin úr reiðtúr

 

 

 

Píla og Trýna að liggja í leti! Held að Píla eigi Íslandsmet í því að liggja í leti!!!

 

 

 

Þessum litla kút þykir líka voða gott að liggja aðeins í leti á teppinu sínu

 

 

 

Tekið vel á móti afa og ömmu

 

 

 

Ástþór Örn varð ægilega glaður að fá afa og ömmu heim

 

 

 

Trýna, Píla, Dufgus og nafnarnir!

 

 

 

Amma knúsuð og kysst

 

 

 

Arnaldur Kári dafnaði vel í sveitinni, velti sér um leiksvæðið sitt og reifst við sjálfan sig í speglinum sem er fastur á leikteppinu!

 

 

 

Afi og amma hafa sjálfsagt haldið að við værum að gabba þau þegar við sögðum þeim að það hefði verið hálffúlt veðiur í sveitinni

á meðan þau voru í sólinni og hitanum. En þeir voru sólríkir en svolítið vindasamir dagarnir núna í vikunni eftir að þau komu heim.

Píla gat því slappað vel af í sólinni :o)

 

 

Mér finnst bara alltaf jafn gaman að taka myndir af Seljafellinu!

 

 

 

Svo var hoppað í parís

 

 

 

Krúsilíus slappar aðeins af

 

 

 

Myndarlegir frændur, Ástþór Örn, Arnaldur Gauti og Þorsteinn Gauti!

Vantaði bara Martein, sem var sárt saknað og kemur vonandi sem fyrst

í sveitina í heimsókn.

 

 

 

Að kvöldi 13. júní kom þetta fallega hestfolald í heiminn. Elfa passar vel upp á þennan litla snáða sinn!

 

 

 

Voðalega fallegur jarpur með stjörnu, eins og pabbinn hann Máttur

 

 

 

Og hér er Hnota Elfu og Kapalsdóttir sem var svo lítið folald fyrir svo stuttu síðan! En það eru víst komin tvö ár

síðan hún kom í heiminn.

 

 

 

Já tíminn líður hratt og Arnaldur Kári orðinn nógu stór og stöðugur til að sitja í stól við borðið

 

 

 

Ægilega glaður að vera kominn í þessa hæð, horft út um gluggann og fylgst betur með

 

 

 

 

Vonum að þið hafið það öll sem allra best. Þessir herramenn senda ykkur sumarkveðju!