10. apríl

 

 

Jæja! Nokkrar myndir og fréttir af okkur!

 

 

 

Síðasta föstudag fór Ástþór Örn í fimm ára skoðun og stóð sig mjög vel.

Bað mig að taka mynd af plástrinum, en fimm ára sprautan var

heljarinnar mál hjá þessum strák sem þótti hann sérstaklega mikil hetja að láta sig hafa þessa stungu!

 

 

 

Langþráð að geta farið svolítið út!! Þeir feðgar úti um síðustu helgi. Drifu sig svo í smá göngutúr og smá fótbolta.

Á sunnudag skelltu þeir sér svo í bíó og skemmtu sér konunglega yfir Ástrík á Ólympíuleikunum

 

 

 

Við Arnaldur Kári tókum því bara rólega innan dyra aftur á móti!

 

 

  

 

Fátt annað að gera en að taka myndir af þessum sæta strák

 

 

 

Og klára peysu á hann! Haldiði ekki að hann verði flottur í henni eftir örfáar vikur!?

 

 

 

Arnaldur Kári er miklu hrifnari af höndunum sínum en snuðinu

 

 

Arnaldur Kári og sætu lærin!

 

 

 

Þessi strákur stækkar ansi hratt og eru meðal annars flestir náttgallar sem

ég taldi að væru vel við vöxt orðnir heldur litlir!

 

 

 

Arnaldur Kári í smá starfsþjálfun

 

 

 

 

 

Í dag skruppum við mæðgin til læknisins að láta kíkja í eyrun. Það var allt á réttri leið.

 

 

 

Ástþór Örn var heima í dag en sem betur fer hitalaus. Búinn að vera með svolítinn hósta

eftir berkjubólguna, sem er eðlilegt svo sem en í fyrradag var hann heldur verri og fengum við tíma

í gær til að láta hlusta hann til öryggis. Læknirinn sagði að hann hefði trúlega náð sér í einhvern

smá kvefvírus og best væri að taka nokkra daga í smá afslöppun og ná honum úr sér.

Ástþóri Erni er mjög umhugað um að komast á leikskólann á þriðjudaginn, því þá á að heimsækja

Sorpu en hann er sérstaklega áhugasamur um endurvinnslu!

Er hér einmitt í nokkurs konar endurvinnslu að mála plastdall undan pasta sem hann langaði

voðalega að fá að nota sem blómapott!!!

 

 

 

"Mamma...svona gera töffarar og hjólabrettakappar"

 

 

Blómapotturinn tilbúinn og vantar bara fallegt blóm í hann.

 

 

Vonum að þið hafið það öll gott og eigið góða helgi fram undan. Við ætlum nú bara að taka því rólega

enda nóg af batteríum sem þarf að hlaða...alla vega mín! Reyna að vinna á þessu kvefi og slappa af.